Forvarna- og frístundanefnd - 12. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Héðinn Sveinbjörnsson - aðalfulltrúi
- Tjörvi Dýrfjörð - aðalfulltrúi
- Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
- Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
- Sigmar Þormar - aðalfulltrúi
- Jóhannes Ævar Hilmarsson - varafulltrúi
Ritari
- Linda Udengaard
Dagskrá fundar
Beiðni um forvarnastyrk. Frestað frá síðasta fundi.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að styrkja Krísuvíkursamtökin um kr. 225.000.
Lögð fram greinargerð um vetrarstarf félagsmiðstöðva starfsárið 2011-2012. Frestað frá síðasta fundi.
Forvarna- og frístundanefnd þakkar fyrir greinargerðina um vetrarstarf félagsmiðstöðvanna og lýsir ánægju sinni með metnaðarfullt uppeldis- og forvarnastarf í félagsmiðstöðvum bæjarins.
Fyrirspurn frá Maritafræðslunni um styrki vegna forvarnafræðslu í grunnskólum Kópavogs.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir að styrkja grunnskóla Kópavogi sem þess óska um tvo fundi á núverandi skólaári frá Maritafræðslunni.
Lögð fram dagskrá forvarnaviku félagsmiðstöðva barna og unglinga.
Forvarna- og frístundanefnd fagnar faglegri dagskrá þar sem fjallað verður á opinskáan hátt um netfíkn og kynlíf unglinga. Fræðslan er fyrir unglinga, foreldra og starfsfólk félagsmiðstöðvanna.
Vettvangsferð í félagsmiðstöðvar barna- og unglinga.
Forvarna- og frístundanefnd þakkar móttökur í félagsmiðstöðvunum og áhugaverðar kynningar á mikilvægu starfi félagsmiðstöðvanna í Kópavogi.