Forvarna- og frístundanefnd - 8. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Héðinn Sveinbjörnsson - aðalfulltrúi
- Bragi Michaelsson - aðalfulltrúi
- Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
- Sigmar Þormar - aðalfulltrúi
- Stefán Ólafsson - varafulltrúi
- Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
- Arna Margrét Erlingsdóttir - verkefnastjóri
- Andri Þór Lefever - starfsmaður fræðslusviðs
Ritari
- Linda Udengaard
Dagskrá fundar
Kynning á dagskrá frá Skátafélaginu Kópum.
Lögð fram tillaga að dagskrá Sumardagsins fyrsta í Fífunni frá Skátafélaginu Kópum. Forvarna- og frístundanefnd hvetur bæjarbúar til að fagna sumri og taka þátt í hátíðarhöldunum.
Kynning á sumarnámskeiðum í Kópavogi 2012.
Heimasíða fyrir sumarnámskeið 2012 kynnt, Samþykkt að senda út póstkort á öll póstföng þar sem heimasíðan er kynnt, netfang fyrir fyrirspurnir og aðrar upplýsingar er varða sumarnámskeiðin.
Tillaga um skipulag frístundamála í Kópavogi fyrir 6-20 ára börn, unglinga og ungmenni með fötlun.
Yfirlit yfir frístunda- og vinnutilboð fyrir einstaklinga með sérþarfir (6-20 ára) kynnt og samþykkt.
Forvarna- og frístundanefndin samþykkir styrk kr. 175.000 til Skólahreysti.
Beiðni um forvarnastyrk frá SAMANhópnum.
Forvarna- og frístundanefndin samþykkir styrk kr. 100.000 til SAMAN-hópsins.
Frá Boccíahóp Gjábakka.
Forvarna- og frístundanefndin samþykkir styrk kr. 20.000 til Bocciahóps Gjábakka.
Lagt fram til kynningar.
Vettvangsheimsókn - Kynning á starfsemi Molans