Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Forvarna- og frístundanefnd - 18. fundur

í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Héðinn Sveinbjörnsson - aðalfulltrúi
  • Tjörvi Dýrfjörð - aðalfulltrúi
  • Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
  • Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Sigmar Þormar - aðalfulltrúi
  • Jón Kristinn Snæhólm - aðalfulltrúi
  • Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs

Ritari

  • Linda Udengaard

Dagskrá fundar

01

Styrkbeiðni vegna Ástráðs, forvarnastarfs læknanema

Frá Ástráði, forvarnastarfi læknanema, dags. í september, óskað eftir styrk til starfseminnar í vetur. Kostnaðurinn er áætlaður kr. 2.000.000,- og sótt er um styrk upp í þá fjárhæð.$line$

Forvarna- og frístundanefnd frestar afgreiðslu og felur starfsmanni að boða fulltrúa Ástráðs á næsta fund.

02

Boðið upp á "Verndum þau" námskeið

Beiðni styrk til að halda forvarnanámskeið á vegum "Verndum þau" í Kópavogi, sendandi Æskulýðsvettvangurinn.

Nefndin þakkar fyrir áhugavert tilboð og afþakkar boðið að þessu sinni. Síðastliðið vor stóð Kópavogsbær fyrir námskeiðinu "Verndum þau" fyrir allt starfsfólk félagsmiðstöðva, ungmennahúss, íþróttahús og sundlauga.

03

Beiðni um styrk vegna forvarna

Beiðni um forvarnastyrk í "Þjóðarátak Svavars Sigurðssonar gegn fíkniefnum".

Forvarna- og frístundanefnd sér sér ekki fært að verða við umsókninni.

04

Hlaupið gegn einelti. Tillaga frá Ármanni Kr. Ólafssyni.

Upplýsingar um stöðu vinnuferlis.

Greint frá skipulagningu verkefnisins. Í hverju hverfi verður skipulögð ganga/hlaup og fræðsla. Hverfisteymi sem samanstanda af fulltrúum frá grunnskóla, leikskóla(um) og félagsmiðstöð skipuleggja og framkvæma verkefnið í samstarfi við frístunda- og forvarnadeild, leiksskóladeild, grunnskóladeild, markaðsskrifstofu og almannatengslafulltrúa. Forvarna- og frístundanefnd beinir þeim óskum til starfsmanna menntasviðs að kynna vinnuferli eineltismála í stofnunum menntasviðs fyrir hlutaðeigandi aðilum.

05

Beiðni um styrk til útgáfu Forvarnabókarinnar

Beiðni frá FRÆ um styrk til að taka þátt í kostnaði við útgáfu Forvarnahandbókar.

Forvarna- og frístundanefnd frestar afgreiðslu málsins og felur starfsmanni nefndar að afla nánari upplýsinga um stöðu verkefnisins.

06

Forvarnastefna Kópavogs

Lögð fram lokadrög að reglum Forvarnarsjóðs Kópavogs

Farið yfir drög að reglum sjóðsins. Ákveðið að stefna að fyrstu úthlutun í lok árs.

07

Leikfélag Kópavogs - Umsókn um aðild að Frístundastyrk Kópavogsbæjar v/leiklistarnámskeiða fyrir börn og unglinga

Beiðni um aðild að frístundastyrk Kópavogs.

Héðinn Sveinbjörnsson vék af fundi undir þessum lið og Una María Óskarsdóttir tók við stjórn fundarins.Forvarna- og frístundanefnd, í samstarfi við Íþróttaráð, samþykkir umsókn Leikfélags Kópavogs um aðild að Frístundastyrk Kópavogsbæjar vegna leiklistarnámskeiða.

08

Heilsuskóli Tanyu - Umsókn um aðild að Frístundastyrk Kópavogsbæjar v/Zumbanámskeiða fyrir börn og unglinga

Beiðni um aðild að frístundastyrk Kópavogs.

Forvarna- og frístundanefnd, í samstarfi við Íþróttaráð, samþykkir umsókn Heilsuskóla Tanyu um aðild að Frístundastyrk Kópavogsbæjar vegna zumbanámskeiða.

09

Dale Carnegie - Umsókn um aðild að Frístundastyrk Kópavogsbæjar v/ sjálfstyrkingarnámskeiða yrir börn og unglinga

Beiðni um aðild að frístundastyrk Kópavogs.

Forvarna- og frístundanefnd, í samstarfi við Íþróttaráð samþykkir umsókn Dale Carnegie um aðild að Frístundastyrk Kópavogsbæjar vegna sjálfsstyrkinganámskeiða.