Forvarna- og frístundanefnd - 13. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Héðinn Sveinbjörnsson - aðalfulltrúi
- Tjörvi Dýrfjörð - aðalfulltrúi
- Bragi Michaelsson - aðalfulltrúi
- Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
- Sigmar Þormar - aðalfulltrúi
- Diljá Helgadóttir - varafulltrúi
Ritari
- Linda Udengaard
Dagskrá fundar
Forvarna- og frístundanefnd telur eðlilegt að standa að stuðningi við forvarnastarf SÁÁ og telur mikilvægt að fjárveitingar til starfsins séu auknar. Hins vegar er hér um að ræða beiðni um pólítíska stefnumörkun til bæjarfulltrúa og því telur nefndin eðlilegt að bæjarstjórn taki afstöðu til þessa máls.
Frá foreldrasamtökum gegn áfengisauglýsingum.
Forvarna- og frístundanefnd beinir þeim tilmælum til rekstraraðila íþrótta- og tómstundamannvirkja að auglýsingar sem skírskota til áfengistegunda séu ekki hafðar uppi þar sem íþrótta- og tómstundastarf fer fram í mannvirkjum Kópavogsbæjar.
Lögð fram samþykkt fjárhagsáætlun frístunda- og forvarnardeildar fyrir árið 2013.
Kynnt drög að verkefnaáætlun SAMANhópsins fyrir árið 2013.
Kynnt jóla- og áramótaauglýsingar frá SAMANhópnum og verkefnið jóladagatal sem birtist í ýmsum vefmiðlum, skjáauglýsingum og öðrum fjölmiðlum. Forvarna- og frístundanefnd fagnar framtaki SAMANhópsins og tekur undir mikilvægi samveru fjölskyldunnar.
Mat á framkvæmd.
Farið yfir framkvæmd á viðburðinum og ræddar ýmsar tillögur og útfærsluatriði.
Kynning á Virkninámskeiði fyrir ungt atvinnulaust fólk. Samstarfsverkefni Molans, Atvinnutorgs og Vinnumálastofnunar.
Andri Lefever forstöðumaður Molans kynnti Virkninámskeiðið fyrir ungt atvinnulaust fólk. Forvarna- og frístundanefnd lýsir ánægju sinni með þetta forvarnaverkefni og hvetur til áframhaldandi starfa að þessu verkefni.
Kynntar nýjar heimasíður fyrir stofnanir frístunda- og forvarnadeildar sjá www.fristundir.is
Forvarna- og frístundanefnd lýsir ánægju sinni með verkefnið og uppfærslum á heimasíðum fyrir frístundastarf í bænum.
Bragi Michaelsson óskaði eftir umræðum og upplýsingum um eineltisáætlanir grunnskóla Kópavogs á næsta fund nefndarinnar.