Forvarna- og frístundanefnd - 19. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Héðinn Sveinbjörnsson - aðalfulltrúi
- Tjörvi Dýrfjörð - aðalfulltrúi
- Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
- Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
- Sigmar Þormar - aðalfulltrúi
- Jón Kristinn Snæhólm - aðalfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
Ritari
- Linda Udengard
Dagskrá fundar
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir 350.000 kr. í styrk til útgáfu Forvarnahandbókarinnar. Mikilvægt er að bókin sé aðgengileg fyrir þá aðila sem koma að málefnum barna og unglinga í Kópavogi.
Erindinu frestað til næsta fundar þar sem ekki náðist í forsvarsmenn Ástráðs.
Lagðar fram úthlutunarreglur Forvarnasjóðs Kópavogs
Lögð fram lokadrög að úthlutunarreglum fyrir Forvarnasjóð Kópavogs. Forvarna- og frístundanefnd samþykkir reglurnar og felur starfsmanni að vinna áfram að umsóknarferli. Stefnt að auglýsingu frá sjóðnum í upphafi árs 2014.
Forvarna- og frístundanefnd samþykkir umsókn Lauga um aðild að Frístundastyrk Kópavogsbæjar vegna námskeiða í unglingahreysti, með fyrirvara um samþykki íþróttaráðs.
Lagt fram til kynningar drög að erindisbréfi fyrir Ungmennaráð Kópavogs
Forvarna- og frístundanefnd fagnar þeirri vinnu sem farið hefur fram og leggur áherslu á að stofnað verði Ungmennaráð Kópavogs.