Forvarna- og frístundanefnd - 14. fundur
í Fannborg 2, 2. hæð, litla sal
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Héðinn Sveinbjörnsson - aðalfulltrúi
- Tjörvi Dýrfjörð - aðalfulltrúi
- Bragi Michaelsson - aðalfulltrúi
- Guðbjörg Linda Udengard - Deildarstjóri frístunda- og forvarnardeildar
- Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
- Anna Birna Snæbjörnsdóttir - Sviðsstjóri menntasviðs
- Arna Margrét Erlingsdóttir - verkefnastjóri
- Helga Margrét Reinhardsdóttir - varafulltrúi
Ritari
- Linda Udengaard
Dagskrá fundar
Beiðni um forvarnastyrk frá SAMAN-hópnum.
Frístunda- og forvarnanefnd samþykkir styrk að upphæð kr. 100.000. Nefndin vekur athygli á að allar fundargerðir hópsins og ýmsar forvarnaupplýsingar má finna á heimasíðu hópsins, <A href="http://www.saman.hopurinn.is">www.saman.hopurinn.is</A>.
Endurskoðun á forvarnastefnu Kópavogs - vinnufundur.
Unnið að endurskoðun á forvarnastefnu Kópavogs og að drögum að reglum um úthlutun á forvarnastyrkjum. Ákveðið að vinna að málinu á vormisseri.
Deildarstjóri grunnskóladeildar mætir á fundinn og svara fyrirspurn frá fundi Forvarnar- og frístundanefndar frá 29.nóvember 2012 um eineltisáætlanir í grunnskólum Kópavogs.
Ragnheiður Hermansdóttir deildarstjóri grunnskóladeildar lagði fram minnisblað vegna fyrirspurnar um fagráð í eineltismálum og eineltismál í grunnskólum. Forvarna- og frístundanefnd þakkar fyrir greinargóð svör.