Forvarnanefnd - 26. fundur
Fannborg 2, 1. hæð, stærra fundarh
Mætt til fundar
Ritari
- Jón Júlíusson
Dagskrá fundar

Sigurður Grétar Ólafsson forstöðumaður vinnuskólans kom á fundinn og kynnti undirbúningsstarf sem leiðbeinendur skólans sinna, og námskeið sem þeir fara á til að undirbúa sumarið. Námskeið og fræðsla á vegum vinnuskólans 1. - 11. júní eru: Skyndihjálp, verkleg kennsla-stöðvaþjálfun, forvarnarfræðsla, vinnuskýrslugerð-umsagnir, samskiptanámskeið, verkstjórn fyrir unga stjórnendur, vinnuvernd-líkamsbeiting, umhverfisfræðsla. Forvarnanefnd lýsir yfir ánægju sinni með vel skipulagt fræðslustarf og leggur áherslu á að svo verði áfram samkvæmt forvarnastefnu Kópavogsbæjar.

Farið yfir forvarnarverkefni nefndarinnar sem hafa verið á dagskrá. Forvarnarfulltrúa falið að fylgja eftir forvarnarfræðslu m.a. í Vinnuskóla Kópavogs.

Lagður fram undirritaður samningur vegna verkefnisins.

Lagðar fram niðurstöður úr skýrslu um framboð á næringu og hreyfingu í leik- og grunnksólum Kópavogsbæjar. Í skýrslunni, sem er unnin í tenglsum verkefnið eru settar fram helstu niðurstöður frá árunum 2005, 2007 og 2009. Unnin var metnaðarfull rannsókn um þessi mál og ráðið vill bóka eftirfarandi:

Forvarnanefnd leggur til við bæjarráð og bæjarstjórn að mótuð verði stefna bæjarins varðandi framboð á næringu og hreyfingu í stofnunum bæjarins, í leikskólum, grunnskólum, íþróttamannvirkjum og öðrum stofnunum bæjarins.

Undirritaðir fráfarandi fulltrúar í forvarnarnefnd hvetja nýja bæjarstjórn til að tryggja þessum mikilvæga málaflokki áframhaldandi stöðu innan bæjarins. Sérstök forvarnanefnd starfi áfram á komandi kjörtímabili.