Framkvæmdaráð - 17. fundur
í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð
Mætt til fundar
Ritari
- Sigurjón Ingvason
Dagskrá fundar
Frá deildarstjóra eignadeildar. Kostnaðaráætlun fyrir vatnsúðakerfi.

Frekari vinnslu málsins er vísað til gerðar fjárhagsáætlunar. Bent er á að Kópavogsbær á aðeins hluta fasteignarinnar. Sviðsstjóra umhverfissviðs er falið að vinna áfram í málinu og ræða við húsfélagið og slökkvilið.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs. Tillaga um lokun á hluta undirgangna.

Samþykkt svo framarlega sem kostnaður fer ekki fram úr ramma fjárhagsáætlunar.

Drög að endurskoðuðum reglum um úthlutun lóða fyrir íbúðarhúsnæði.

Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar til endanlegrar afgreiðslu.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs. Mat á kostnaði við breytingar á girðingum.

Lagt fram.

Bréf Vegagerðar dags. 28. september 2011 varðandi Elliðavatnshvarf.

Ástæða fyrir þjónustu Vegagerðarinnar er sú að vegurinn er tenging við þjóðvegakerfið á með Arnarnesvegur hefur ekki verið lagður. Vegurinn þjónar m.a. íbúum í sveitarfélögum sunnan Kópavogs. Að mati framkvæmdaráðs hafa forsendur fyrir greiðsluþátttöku Vegagerðar í engu breyst og verður að telja eðlilegt að breytingar verði ákveðnar í samráði aðila og óskar eftir viðræðum við Vegagerðina. Einhliða ákvörðun Vegargerðar um að hætta viðhaldi einstakra vega sem hingað til hafa verið á hennar kostnað er ekki ásættanleg. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.