Framkvæmdaráð - 52. fundur
í Fannborg 2, fundarherbergi 3. hæð
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Guðríður Eldey Arnardóttir - aðalfulltrúi
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Gunnar Ingi Birgisson - aðalfulltrúi
- Steingrímur Hauksson - embættismaður
- Ómar Stefánsson - aðalfulltrúi
- Ólafur Þór Gunnarsson - áheyrnarfulltrúi
- Guðmundur Guðbjart Gunnarsson - embættismaður
Ritari
- Guðmundur Gunnarsson
Dagskrá fundar
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs
Borist hefur umsókn um lóðina Hafraþing 1-3 frá HSH byggingarmeistarar ehf kt. 681096-2059. Umsækjandi uppfyllir skilyrði úthlutunarreglna. Lóðin hefur verið auglýst á heimasíðu Kópavogsbæjar. Framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að umsækjanda verði úthlutað lóðinni Hafraþing 1-3.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs
Borist hefur umsókn um lóðina Vesturvör 50 frá Steinbock þjónustunni ehf. kt. 460472-0249. Lóðin hefur verið auglýst á heimasíðu Kópavogsbæjar. Framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við bæjarstjórn að umsækjanda verði úthlutað lóðinni Vesturvör 50. Guðríður Arnardóttir mætti til fundar 8:20
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs
Lögð fram tillaga sviðsstjóra að yfirtökugjöldum Vatnsendahlíð, dags. 11. júní 2013. Tillagan byggir á gildandi yfirtökugjöldum, að því undanskildu að stærðarflokkun er breytt. Framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við bæjarráð að yfirtökugjöld í Vatnsendahlíð verði skv. tillögu sviðsstjóra dags. 11. júní 2013. Framkvæmdaráð samþykkir að lóðir í Vallaþingi verði auglýstar lausar til úthlutunar á heimasíðu Kópavogsbæjar, þegar fyrir liggur staðfesting á deiliskipulagi í B-deild Stjórnartíðinda.
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs
Á fundi framkvæmdaráðs 24. apríl sl. var lögð fram frumáætlun fyrir gatnagerð Leiðarenda og Vallaþingi. Áætlun um kostnað við að gera svæðið byggingarhæft er um kr. 160 milljónir, án malbikunar. Verkáætlun gerir ráð fyrir að verkið verði unnið árin 2013 og 2014. Unnið verði fyrir allt að kr. 80 milljónum á árinu 2013. Fjármögnun gatnagerðar verði með sölu lóða. Framkvæmdaráð samþykkir að leggja til við bæjarráð að heimilað verði opið útboð verksins "Vatnsendahlíð, gatnagerð 1. áfangi."
Frá sviðsstjóra umhverfissviðs
Garðyrkjustjóri gerði grein fyrir stöðu ráðninga vegna sumarstarfa hjá Kópavogsbæ 2013.