Framkvæmdaráð - 5. fundur
í fundarherb. 3. hæð
Mætt til fundar
Ritari
- Sigurjón Ingvason
Dagskrá fundar
Endurskoðuð drög lögð fram til umræðu.

Lagt fram. Formaður framkvæmdaráðs óskar eftir athugasemdum við drögin eigi síðar en 17. janúar nk.

Frá Strætó bs., dags. 21/12, vegna fyrirhugaðra breytinga á leiðum 28 og 36. Í ljósi þess að Reykjavíkurborg hafnar þátttöku er afstöðu Kópavogs óskað að nýju. Meðfylgjandi er svar borgarinnar ásamt ályktun umhverfis- og samgönguráðs. Guðríður Arnardóttir, formaður bæjarráðs, lagði til eftirfarandi afgreiðslu:$line$""Bæjarráð vísar málinu til framkvæmdaráðs og að ráðið kanni möguleika þess að bjóða út aksturtengingu við Mjódd."" Tillaga Guðríðar Arnardóttur var samþykkt samhljóða.$line$

Hjálmar Hjálmarsson mætti á fundinn vegna þessa máls. Framkvæmdaráð felur fulltrúa Kópavogsbæjar í stjórn Strætó bs. og sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs að kanna hagræðingu í leiðakerfinu til að koma á tengingu við Vatnsenda og Mjódd.

Lagt fram bréf frá gæðastjóra. Sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs falið að flokka innkaup bæjarins og greina kosti þess og galla að gerast aðili að rammasamningi Ríkiskaupa. Ítrekuð er umhverfisstefna bæjarins varðandi vistvæn innkaup.

Framkvæmda- og tæknisvið óskar eftir heimild til að láta vinna alútboðsgögn fyrir reiðskemmu á Kjóavöllum og auglýsa forval vegna útboðs.

Sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs falið að auglýsa forval vegna alútboðs á reiðskemmu á Kjóavöllum.

Ármann Kr. Ólafsson bókar að samkvæmt fjárhagsáætlun eru 60 millj. kr. ætlaðar í framkvæmdir við reiðskemmuna á árinu.

Framkvæmda- og tæknisvið óskar eftir heimild til að undirbúa útboð vegna breytinga á húsnæði að Skjólbraut 1A fyrir sambýli fatlaðra, sbr. meðfylgjandi gögn.

Sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisvið falið að undirbúa útboð, en bent er á að vinna þarf breytingar í samráði við íbúa sambýlis á Borgarholtsbraut.

Frestað. Samþykkt að boða fulltrúa Kópavogsbæjar í stjórn Sorpu á næsta fund.