Íþrótta- og tómstundaráð - 248. fundur
Fannborg 2, 2. hæð, Litli salur
Mætt til fundar
Ritari
- Jón Júlíusson
Dagskrá fundar

Verkefnastjóri tómstundamála, Arna Margrét Erlingsdóttir kom á fundinn og kynnti sumarnámskeið sem verða í boði í Kópavogsbæ sumarið 2010, þar á meðal tvö ný námskeið.

ÍTK samþykkir tillögur verkefnastjóra. ÍTK fagnar fjölbreytilegu framboði sumarnámskeiða í bænum og leggur áherslu á mikilvægi þess að öll börn sem þess óska geti sótt námskeiðin.

Lögð fram frumgögn um verðskrár íþróttafélaganna í Kópavogi og samanburð milli ára. ÍTK felur starfsmönnum Tómstunda- og menningarsviðs að afla að auki upplýsinga frá félögum utan Kópavogs, greina þær frekar og leggja það að nýju fyrir ráðið.

Deildarstjóri ÍTK greindi frá fundi sem haldinn var með Ásdísi Ólafsdóttur, íþróttakennara í framhaldi af bréfi sem hún sendi ráðinu. Fundinn sátu auk Ásdísar og deildarstjóra, forstöðumenn sundlauganna, íþróttafulltrúi, sviðsstjórar Fræðslusviðs og Tómstunda- og menningarsviðs og Ragnar Róbertsson íþróttakennari.

ÍTK þakkar bréfritara fyrir góðar ábendingar og felur starfsmönnum að vinna áfram að málinu.

Greint frá fyrirhuguðum endurbótum á gólfi í íþróttahúsi Digraness.

ÍTK telur mikilvægt að unnið verði áfram að stefnumótun á íþrótta- og æskulýðsmálum í Kópavogi.

ÍTK kallar eftir tillögum frá starfsmönnum Tómstunda- og menningarsvið um nýtingu á húsnæðinu í Kórnum.