Kársnesbraut 95, breytt deiliskipulag
Málsnúmer: 0708071
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2508. fundur
Liður 6 - Skipulagsnefnd hafnar erindinu á grundvelli umsagnar bæjarskipulags, dags. 10. júní 2009 um innsendar athugasemdir og vísar erindinu til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð hafnar erindinu.
02
Skipulagsnefnd - 1166. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 18. mars 2008 er lagt fram erindi Kvarða dags. 5. mars 2008 f.h. lóðarhafa að lóð nr. 95 við Kársnesbraut. Í erindinu felst að núverandi bygging á lóðinni verður rifin og byggt á lóðinni parhús á tveimur hæðum að grunnfleti 211.4 m². Hámarkshæð húss verði 6,3 m.Skipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.Á fundi bæjarráðs 19. mars 2008 er tillagan samþykkt og að hún verði auglýst í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.Tillagan var auglýst frá 1. apríl til 29. apríl, með athugasemdafresti til 13. maí 2008. Athugasemdir bárust.Á fundi skipulagsnefndar 20. maí 2008 er erindið lagt fram að nýju ásamt athugasemdum. Frestað. Bæjarskipulagi falið að taka saman umsögn varðandi innsendar athugasemdir. Á fundi skipulagsnefndar 3. júní 2008 er erindið lagt fram að nýju ásamt umsögn bæjarskipulags dags. 3. júní 2008. Frestað. Skipulagsstjóra falið að vinna að málinu eins og fram kom á fundinum.Á fundi skipulagsnefndar 16. júní 2008 er erindið lagt fram að nýju. Skipulagsnefnd samþykkir að senda þeim sem gerðu athugasemdir erindið á ný, með leiðréttum gögnum og gefa 30 daga skilafrest á athugasemdum.Á fundi skipulagsnefndar 18. nóvember 2008 er erindið lagt fram að nýju ásamt bréfi lóðarhafa dags. 14. nóvember 2008.Skipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.Á fundi bæjarráðs 20. nóvember 2008 er samþykkt að tillagan verði auglýst. Tillagan var auglýst 2. desember 2008 til 6. janúar 2009 með athugasemdafresti til 20. janúar 2009. Athugasemdir bárust.Á fundi skipulagsnefndar 20. janúar 2009 er erindið lagt fram að nýju ásamt athugasemdum.Frestað. Bæjarskipulagi falið að taka saman umsögn varðandi innsenda athugasemd.Á fundi skipulagsnefndar 10. júní 2009 er erindið lagt fram að nýju ásamt umsögn bæjarskipulags dags. 10. júní 2009 og tölvugerðum þrívíddarmyndum sem sýna ásýnd svæðisins frá fyrstu og annari hæð hússins að Holtagerði 46
Skipulagsnefnd hafnar erindinu á grundvelli umsagnar bæjarskipualgs dags. 10. júní 2009 um innsendar athugasemdir og vísar erindinu til afgreiðslu bæjarráðs.