Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Hátröð 8, breytt deiliskipulag

Málsnúmer: 0710027

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2505. fundur

Liður 16 - Skipulagsnefnd hafnar erindinu og vísar því til bæjarráðs og bæjarstjórnar.

Bæjarráð hafnar erindinu.

02

Skipulagsnefnd - 1165. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 2. október 2007 er lagt fram erindi K.R ark ehf. f.h. lóðarhafa dags. 1. október 2007 um að skipulagsnefnd heimili að fjarlægja skuli núverandi hús og reisa þess í stað parhús á einni hæð auk nýtanlegs ris með aðkomu frá Hátröð og Bjarnhólastíg.%0DMeðfylgjandi: Uppdráttur í mkv 1:200 og 1:500 dags. 6. júlí 2007.%0DSkipulagsnefnd biður um lang- og þversneiðingar þar sem afstaða nágrannahúsa kemur fram og önnur deiliskipulagsgögn. %0DSkipulagsstjóri vék af fundi við umfjöllun um málið.%0DÁ fundi skipulagsnefndar 16. október 2007 er erindið lagt frá að nýju ásamt umbeðnum gögnum.%0DSkipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.%0DÁ fundi bæjarráðs 18. október 2007 er tillagan samþykkt og að hún verði auglýst í samræmi við 25. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997.%0DTillagan var auglýst frá 30. október til 4. desember, með athugasemdafresti til 18. desember 2007. Athugasemdir bárust.%0DÁ fundi skipulagsnefndar 19. desember 2007 er erindið lagt fram að nýju ásamt athugasemdum.%0DFrestað. Bæjarskipulagi falið að taka saman umsögn varðandi innsendar athugasemdir. %0DÁ fundi skipulagsnefndar 5. febrúar 2008 er málið lagt fram að nýju.%0DSkipulagsstjóri vék af fundi við umfjöllun um málið. Lagt fram ásamt umsögn bæjarskipulags dags. 5. feb. 2008.%0DFrestað. Aðstoðarskipulagsstjóra falið að vinna að málinu eins og fram kom á fundinum.%0DLagt fram að nýju ásamt nýjum uppdrætti dags. 3. apríl 2008 þar sem hús er lækkað um ½ meter dregið úr byggingarmagni í risi og þaki breytt.%0DSkipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.%0DSkipulagsstjóri vék af fundi við umfjöllun um málið.%0DÁ fundi bæjarráðs 17. apríl 2008 er samþykkt að tillagan verði auglýst.%0DTillagan var auglýst 29. apríl til 27. maí 2008 með athugasemdafresti til 10. júní 2008. Athugasemdir bárust.%0DÁ fundi skipulagsnefndar 16. júní 2008 er erindið lagt fram að nýju ásamt athugasemdum.%0DFrestað. Bæjarskipulagi falið að taka saman umsögn varðandi innsendar athugasemdir. %0DFulltrúar Samfylkingarinnar óska eftir skriflegu áliti skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs og Skipulagsstofnunnar um lögmæti deiliskipulags – almennt á einni lóð í hverfum þar sem deiliskipulag liggur ekki fyrir. %0DÁ fundi skipulagsnefndar 12. ágúst 2008 er erindið lagt fram að nýju ásamt umsögn dags. 12. ágúst 2008. %0DFrestað. Sviðsstjóra falið að vinna að málinu eins og fram kom á fundinum.%0DÁ fundi skipulagsnefndar 17. febrúar 2009 er erindið lagt fram að nýju þar sem komið hefur verið til móts við innsendar athugasemdir og byggingarreitur minnkaður og bílageymslur fjarlægðar.%0DSkipulagsstjóri vék af fundi við umfjöllun um málið.%0DFrestað: Skipulagsnefnd felur bæjarskipulagi að gera umsögn um innsendar athugasemdir á grundvelli breyttrar tillögu.%0DÁ fundi skipulagsnefndar 19. maí 2009 er erindið lagt fram að nýju ásamt tölvuskeyti lóðarhafa dags. 14. maí 2009.%0D

<DIV&gt;%0D<DIV&gt;Skipulagsstjóri vék af fundi við umfjöllun um málið.</DIV&gt;%0D<DIV&gt;Skipulagsnefnd hafnar erindinu og vísar því til bæjarráðs og bæjarstjórnar.</DIV&gt;</DIV&gt;