Hlíðarvegur 58. Breytt deiliskipulag
Málsnúmer: 0803107
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2508. fundur
Liður 9 - Skipulagsnefnd hafnar erindinu og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.
Bæjarráð hafnar erindinu.
02
Skipulagsnefnd - 1166. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 16. ágúst 2005 var lagt fram erindi lóðahafa varðandi stækkun á lóðinni nr. 58 við Hlíðarveg.Meðfylgjandi: Mæliblað dags. 12. janúar 1993.Skipulagsnefnd samþykkti að senda erindið í kynningu til lóðarhafa Hlíðarvegar 60. Kynningatíma lauk 27. september 2005. Athugasemd barst frá lóðarhöfum Hlíðarvegar 60. dags. 21. sept. 2005.Á fundi skipulagsnefndar 4. október 2005 var erindið lagt fram að nýju ásamt áður nefndri athugasemd.Frestað. Bæjarskipulagi falið að taka saman umsögn varðandi innsenda athugasemd.Á fundi skipulagsnefndar 6. desember 2005 var erindið lagt fram að nýju. Greint frá fundi sem haldinn var með lóðarhöfum Hlíðarvegar 58 og 60.Afgreiðslu frestað. Skipulagsstjóra falið að vinna að málinu eins og rætt var á fundinum. Á fundi skipulagsnefndar 5. september 2006 er erindið lagt fram að nýju. Skipulagsstjóri gerði grein fyrir málinu. Á fundi skipulagsnefndar 6. maí 2008 er erindið lagt fram að nýju.Frestað. Skipulagsnefnd vísar erindinu til lögmanns Skipulags- og umhverfissviðs og felur honum að vinna að því sem fram kom á fundinum.Á fundi skipulagsnefndar 10. júní 2009 er erindið lagt fram að nýju ásamt umsögn lögmanns Skipulags- og umhverfissviðs.
<DIV>Skipulagsnefnd hafnar erindinu og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.</DIV>