Vatnsendablettur 730-739. Breytt deiliskipulag
Málsnúmer: 0803263
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2496. fundur
Liður 23, mál nr. 0803263.%0D
Bæjarráð frestar afgreiðslu erindisins.
02
Skipulagsnefnd - 1161. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 1. apríl 2008 er lagt fram tillaga Björgvins Snæbjörnssonar arkitekts dags. 25. mars 2008 f.h. lóðarhafa Vatnsendabletta 730-739 að breyttu deiliskipulagi á svæðinu Milli vatns og vegar. Vísað er í skipulagsskilmála fyrir umrætt svæði sem samþykkt var í bæjarstjórn 9. apríl 2002.%0D Nánar tiltekið nær breytingin til Vatnsendablettar 730-739 og afmarkast af Elliðahvammsvegi í vestur, Lindarhvammi (Vbl. 5) í norður, Gilsbakkalandi til austurs og Elliðahvammi til suðurs. Í tillögunni felst að:%0D• Norðurmörk fyrirhugaðra byggðar eru færð um 3 m til suðurs til að rýma fyrir lögnum. %0D• Sex einbýlishúsalóðum norðan til á svæðinu er breytt í sex parhúsalóðir. • Einbýlishúsalóðum á suðurjaðri svæðisins er fjölgað um eina, verða fjórar í stað þriggja.%0D• Gert er ráð fyrir tveimur aðkomum frá Elliðahvammsvegi í stað einnar. Er það gert til að minnka umferð ökutækja norðan til á svæðinu þar sem ökutæki og reiðleið skerast.%0DByggingarreitur einbýlishúsalóða við húsagötu B verði minnkaður þannig að sérkenni í landslagi svæðisins geti notið sín betur. Hámarksgrunnflötur einbýlishúsa verði 250 m² í stað 220 m². %0DTillagan er sett fram á uppdrætti í mkv. 1:1000 ásamt greinargerð og skýringarmyndum dags. 25. mars 2008.%0DBirgir H. Sigurðsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs víkur af fundi við umfjöllun um málið.%0DÁ fundi skipulagsnefndar 15. apríl 2008 er erindið lagt fram að nýju.%0DSkipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.%0DFulltrúar Samfylkingarinnar greiða atkvæði gegn tillögunni.%0DÁ fundi bæjarráðs 17. apríl 2008 er tillögunni vísað til bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 22. apríl 2008 er samþykkt að tillagan verði auglýst. Tillagan var auglýst 29. apríl til 27. maí 2008 með athugasemdafresti til 10. júní 2008. Athugasemdir bárust.%0DÁ fundi skipulagsnefndar 12. ágúst 2008 er erindið lagt fram að nýju ásamt athugasemdum. %0DBirgir H. Sigurðsson sviðsstjóri skipulags- og umhverfissviðs víkur af fundi við umfjöllun um málið.%0D Frestað. Bæjarskipulagi falið að taka saman umsögn varðandi %0D innsendar athugasemdir. %0D Lagt fram minnisblað með atriðum athugasemda.%0D Á fundi skipulagsnefndar 20. janúar 2009 er erindið lagt fram að nýju ásamt drögum að umsögn dags. 20. janúar 2009.%0DFrestað. %0DÁ fundi skipulagsnefndar 17. mars 2009 er erindið lagt fram á ný.
<DIV>Sviðsstjóri vék af fundinum við umfjöllun og afgreiðslu erindis.</DIV>%0D<DIV>Skipulagsnefnd hafnar erindinu. GS, GÖJ og JJ greiða atkvæði á móti, EKJ samþykkir erindið, HR situr hjá. </DIV>