Austurkór 97. Óskað eftir að kostnaður og gjöld vegna kaupa á lóð verði endurskoðuð.
Málsnúmer: 0805113
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2496. fundur
Frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs, dags. 12/3, umsögn um erindi Kristins Helgasonar, sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 5/3, ásamt tillögu að svari.
Með vísan til umsagnar sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs getur bæjarráð ekki orðið við því að veita frekari afslátt af lóðargjöldum.
02
Bæjarráð - 2495. fundur
Frá sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs, dags. 10/3, umsögn, sem óskað var eftir í bæjarráði þann 5/3 sl. um erindi Kristins Helgasonar, þar sem farið var fram á endurgreiðslu afgreiðslugjalds vegna Austurkórs 97, ásamt umsögn byggingarfulltrúa um málið.
Með tilvísun til umsagnar byggingarfulltrúa, dags. 9/3, getur bæjarráð ekki orðið við endurgreiðslu umrædds afgreiðslugjalds.
03
Bæjarráð - 2494. fundur
Frá Kristni Helgasyni, dags. 2/3, óskað eftir niðurfellingu á afgreiðslugjaldi, kr. 8.900,-, vegna ofangreindrar lóðar.
<DIV><STRONG>Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra framkvæmda- og tæknisviðs og sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs til umsagnar.</STRONG></DIV>