Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Smiðjuvegur 7. Breytt deiliskipulag

Málsnúmer: 0806145

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2496. fundur

Liður 5, mál nr. 0806145.

Bæjarráð samþykkir framlagt erindi og vísar því til afgreiðslu bæjarstjórnar.

02

Skipulagsnefnd - 1161. fundur

fundi skipulagsnefndar 16. júní 2008 er lagt fram erindi Gunnars Páls Kristinssonar dags. 6. júní 2008 f.h. lóðarhafa nr. 7 við Smiðjuveg. Í erindinu felst ósk um stækkun lóðar og leyfi til stækkunar núverandi byggingar. %0DMeðfylgjandi: Uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 8. júní 2008.%0DSkipulagsnefnd samþykkir að óska eftir umsögn framkvæmda- og tæknisviðs og skipulagsstjóra er falið að ræða við lóðarhafa um það sem fram kom á fundinum.%0DGuðmundur Örn Jónsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.%0DÁ fundi skipulagsnefndar 16. september 2008 er erindið lagt fram að nýju ásamt nýrri og breyttri tillögu að viðbyggingu við Smiðjuveg 7.%0DFrestað. Skipulagsnefnd samþykkir að lóðarhafi láti vinna tillögu að deiliskipulagi fyrir umrædda breytingu og leggi fram þrívíddarteikningar sem sýna ásýnd hús úr vestri.%0DÁ fundi skipulagsnefndar 21. október 2008 er erindið lagt fram að nýju,%0D ásamt deiliskipulagsuppdrætti.%0DGuðmundur Örn Jónsson víkur af fundi við afgreiðslu erindisins.%0DSkipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.%0DÁ fundi bæjarráðs 23. október 2008 er samþykkt að tillagan verði auglýst. %0DTillagan var auglýst 4. nóvember til 2. desember með athugasemdafresti til 16. desember 2008. Athugasemdir bárust.%0DÁ fundi skipulagsnefndar 16. desember 2008 er erindið lagt fram að nýju ásamt athugasemdum. Einnig er lagt fram bréf lóðarhafa í nágrenni dags. 15. desember 2008, þar sem farið er fram að frestur til athugasemda verði framlengdur.%0DGuðmundur Örn Jónsson vék af fundi við afgreiðslu málsins.%0D Skipulagsnefnd telur ekki ástæðu til þess að framlengja frest til athugasemda, enda var auglýsing og dreifibréf vegna hennar með venjubundnum hætti.%0D Frestað. Bæjarskipulagi falið að taka saman umsögn varðandi %0D innsendar athugasemdir. %0DÁ fundi skipulagsnefndar 17. febrúar 2009 er lögð fram að nýju breytt útfærsla erindis. Í breyttri tillögu er komið til móts við innsendar athugasemdir og dregið úr byggingarmagni og hæð viðbyggingar.%0DGuðmundur Örn Jónsson vék af fundi við umfjöllun um erindið.%0DFrestað. Bæjarskipulagi falið að taka saman umsögn varðandi innsendar athugasemdir.%0Dá fundi skipulagsnefndar 17. mars 2009 er erindið lagt fram á ný ásamt umsögn dags. 17. mars 2009.

<DIV&gt;Guðmundur Örn Jónsson víkur af fundi við umfjöllun um erindið og afgreiðslu.</DIV&gt;<DIV&gt;Skipulagsnefnd samþykkir erindið ásamt umsögn dags. 17. mars 2009 og vísar til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.</DIV&gt;