Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Austurkór 7, 9, 11 og 13. Breytt deiliskipulag

Málsnúmer: 0811125

Ferill máls

01

Skipulagsnefnd - 1160. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 18. nóvember 2008 er lagt fram erindi Teiknistofu Kjartans dags. 11. nóvember 2008 fh. lóðarhafa nr. 7, 9, 11 og 13 við Austurkór. Í erindinu felst að óskað er eftir að breyta tveggja hæða raðhúsum með fjórum íbúðum í átta sérbýli. Til að koma fyrir svölum stækka byggingarreitir til suðurs, vesturs og austurs um 2 metra. Hluti húsa fer 0.5 metra upp úr byggingarreit á 3.9 metra svæði í suðurhluta byggingarreits. Bílastæðum fjölgar úr 12 í 16 stæði.%0DMeðfylgjandi: Skýringaruppdráttur í mkv. 1:200 og 1:500 dags. 10. nóvember 2008.%0DSkipulagsnefnd heimilar lóðarhafa að vinna deiliskipulagstillögu fyrir umrædda lóð.%0DÁ fundi skipulagsnefndar 16. desember 2008 er erindið lagt fram að nýju ásamt deiliskipulagstillögu.%0D Skipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.%0DÁ fundi bæjarráðs 18. desember 2008 er samþykkt að tillagan verði auglýst.%0DTillagan var auglýst 13. janúar til 10. febrúar 2009 með athugasemdafresti til 24. febrúar 2009. Engar athugasemdir bárust.%0D Á fundi skipulagsnefndar 3. mars 2009 er erindið lagt fram að nýju.%0D

Skipulagsnefnd samþykkir erindið og<SPAN style="mso-spacerun: yes"&gt; </SPAN&gt;vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.