Holtagerði 26, kynning sbr.7.mgr.43.gr.laga 73/97.
Málsnúmer: 0812080
Ferill máls
01
Skipulagsnefnd - 1161. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 16. desember 2008 er lagt fram erindi byggingarfulltrúa varðandi nr. 26 við Holtagerði dags. 18. nóvember 2008. Erindið varðar beiðni lóðarhafa um leyfi til að byggja viðbyggingu ofan á bílskúr og setja hurð í stað þvottahúsglugga og setja nýjar svalir á vestur hlið hússins. Viðbygging verður um 48,7 m².%0DMeðfylgjandi: Uppdrættir í mkv. 1:100 og 1:200, dags. 11. ág.´08. %0DFrestað. Skipulagsnefnd óskar samþykki meðeiganda, afstöðumynd sem geri grein fyrir aðkomu, legu nærliggjandi húsa og húsakönnun.%0D Á fundi skipulagsnefndar 20. janúar 2009 er erindið lagt fram að nýju. %0DSkipulagsnefnd samþykkir að senda málið í kynningu til lóðarhafa Holtagerði 13, 15, 16, 17, 20, 22, 28, 30, 32, 34, 35, 36 og 37. Kársnesbraut 69, 71, 75, 75a og 77.%0DKynning fór fram 2. febrúar til 6. mars 2009. Engar athugasemdir bárust.%0DÁ fundi skipulagsnefndar 17. mars 2009 er erindið lagt fram á ný.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið og vísar til afgreiðslu byggingarnefndar.