Liður 8 - Smiðjuvegur 68 - 72, breytt deiliskipulag.
Málsnúmer: 0902151
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2501. fundur
Bæjarráð samþykkir framlagt erindi.
02
Skipulagsnefnd - 1163. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 17. febrúar 2009 er lagt fram erindi Blesugróf ehf. lóðarhafa nr. 68 ? 72 við Smiðjuveg dags. 28. janúar 2009. Erindið varðar ósk um breytingu á deiliskipulagi tiltekinna eignarhluta. Eignarhlutarnir verði samþykktir sem gistiheimili/ hótel. Vísað er til bréfs Skipulagsstofnunar dags. 8. janúar 2009 og bréfs skipulagsstjóra dags. 27. janúar 2009. Í bréfum þessum kemur fram að til þess að heimilt verði að gista/ búa á þessari lóð þurfi að breyta deiliskipulaginu á þann hátt að skilmálar heimili rekstur gistiheimilis / hótels í stað starfsmannabúða. Skv. þessu er fallið frá fyrra erindi um starfsmannabúðir og lagt til að koma fyrir gistiheimili /hóteli á umræddri lóð.$line$Meðfylgjandi: Skýringaruppdrættir dags. í janúar 2009 . $line$Skipulagsnefnd samþykkir að tillagan verði auglýst í samræmi við 25 gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 og vísar tillögunni til afgreiðslu bæjarráðs.$line$Á fundi bæjarráðs 19. febrúar 2009 er samþykkt að tillagan verði auglýst.$line$Tillagan var auglýst 3. mars til 31. mars 2009 með athugasemdafresti til 21. apríl 2009.$line$Á fundi skipulagsnefndar 21. apríl 2009 er erindið lagt fram að nýju.
Skipulagsnefnd samþykkir erindið og vísar því til afgreiðslu bæjarráðs.