Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Liður 32 - Reykjavíkurflugvöllur, skipulagsreglur.

Málsnúmer: 0902160

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2501. fundur

Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við skipulagsreglurnar og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Skipulagsnefnd mælir þó með því að bæjarráð áskilji sér rétt til athugasemda síðar. Sviðsstjóra er falið að óska eftir kynningu á skipulagsbreytingunum og mögulegum áhrifum þeirra á núverandi og fyrirhugaða byggð í Kópavogi.

Bæjarráð gerir ekki athugasemdir við tillögu Flugstoða að skipulagsreglum fyrir flugvelli, en áskilur sér rétt til athugasemda síðar.

02

Skipulagsnefnd - 1163. fundur

Á fundi skipulagsnefndar 21. apríl 2009 er lagt fram erindi Flugstoða varðandi heimild til að setja skipulagsreglur fyrir flugvelli, dags. 3. febrúar 2009. Í erindinu er kynnt áætlun samgönguráðherra um að setja skipulagsreglur um m.a. 1. Skipulag innan flugvallarsvæðis. 2. Starfsheimildir og starfsemi innan svæðisins. 3. Fyrirmæli um svæði utan flugvallar, er varðar m.a. hæð mannvirkja og fleira. $line$Nýtt erindi frá Flugstoðum ódagsett barst í mars 2009 og með því tillaga að skipulagsreglum Reykjavíkurflugvallar. Óskað er eftir að athugasemdir berist eigi síðar en 16. apríl 2009.$line$Meðfylgjandi: Skýringaruppdrættir í mkv. 1:25.000 dags. 3. mars 2009. $line$

<DIV&gt;Skipulagsnefnd gerir ekki athugasemdir við skipulagsreglurnar og vísar til endanlegrar afgreiðslu bæjarráðs. Skipulagsnefnd mælir þó með því að bæjarráð áskilji sér rétt til athugasemda síðar. Sviðsstjóra er falið að óska eftir kynningu á skipulagsbreytingunum og mögulegum áhrifum þeirra á núverandi og fyrirhugaða byggð í Kópavogi.</DIV&gt;