Til baka í fundargerðir
Heimild til að bjóða út í opnu útboði grasslátt.
Málsnúmer: 0902218
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2498. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar og garðyrkjustjóra, dags. 27/3, þriðjudaginn 24/3 voru opnuð tilboð í grasslátt í Kópavogi 2009. Lagt er til við bæjarráð að gerður verði samningur við Garðlist ehf. um svæði 1, 2 og 4 samtals kr. 13.606.800 og Odd Guðmundsson á grunni frávikstilboðs um svæði 3, kr. 3.300.640. Jafnframt er óskað heimildar bæjarráðs til að leita samninga við Garðlist ehf. um framlengingu verksamnings samkvæmt frávikstilboði.
Bæjarráð samþykkir erindið.
02
Bæjarráð - 2492. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 18/2, óskað eftir ofangreindri heimild. Gert er ráð fyrir að verkefninu verði skipt niður á fleiri en einn verktaka.
Bæjarráð veitir umbeðna heimild.