Vatnsendablettur 9, trjálundur
Málsnúmer: 0903020
Ferill máls
01
Umhverfisráð - 474. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 17. mars 2009 var lagt fram erindi dags. 24. febrúar 2009. Í erindinu kom fram hvatning til Kópavogsbæjar um að vernda skógarlundinn á svæðinu og tengja öðrum útivistarsvæðum í Kópavogi. Bréfritarar segja frá því að verið sé að taka saman ljósmyndir síðustu 35 ára af svæðinu og að þær myndir verði afhentar Kópavogsbæ. Skipulagsnefnd vísar erindinu til umsagnar umhverfisráðs og endurskoðunar Aðalskipulags Kópavogs.
<DIV>Málið lagt fram og kynnt.</DIV>
02
Skipulagsnefnd - 1161. fundur
Á fundi skipulagsnefndar 17. mars 2009 er lagt fram erindi dags. 24. febrúar 2009. Í erindinu kemur fram hvatning til Kópavogsbæjar um að vernda skógarlundinn á svæðinu og tengja öðrum útivistarsvæðum í Kópavogi. Bréfritarar segja frá því að verið sé að taka saman ljósmyndir síðustu 35 ára af svæðinu og að þær myndir verði afhentar Kópavogsbæ.
Skipulagsnefnd vísar erindinu til umsagnar umhverfisráðs og endurskoðunar Aðalskipulags Kópavogs.