Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Opnuð tilboð í gatnagerð og veitulagnir við tengigötu við Vallarkór.

Málsnúmer: 0903035

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2498. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 1/4, miðvikudaginn 1/4 voru opnuð tilboð í verkið: Vallarkór 4 - 6 tengigata, gatnagerð og veitur, skv. útboðsgögnum gerðum af Verkfræðistofu Bjarna Viðarssonar ehf. Lagt er til við bæjarráð að leitað verði samninga við lægstbjóðanda, Arnarverk ehf.

<DIV&gt;Bæjarráð samþykkir erindið.</DIV&gt;

02

Bæjarráð - 2494. fundur

Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 3/3, óskað heimildar til að bjóða út í opnu útboði gatnagerð og veitulagnir við tengigötu að Vallarkór 4-6. Um er að ræða nýja götu frá hringtorgi á Vatnsendavegi við Baugakór og að Vallarkór.

<DIV&gt;<STRONG&gt;Bæjarráð veitir umbeðna heimild.</STRONG&gt;</DIV&gt;