Umsókn um styrk vegna þátttöku í Ólympíukeppni í efnafræði.
Málsnúmer: 0903126
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2498. fundur
Frá bæjarritara, dags. 26/3, umsögn, sem bæjarráð óskaði eftir á fundi sínum 19/3 sl., um styrkbeiðni frá Erlendi Jónssyni vegna þátttöku í Ólympíuleikum í efnafræði. Erlendur er stundakennari í efnafræði við HÍ og mun hafa umsjón með þjálfun íslenskra keppenda. Kópavogsbær hefur styrkt nemendur, sem taka þátt sem keppendur í Ólympíuleikum í stærðfræði með því að ráða þá í vinnu við Vinnuskólann. Hér er hins vegar um að ræða styrkumsókn vegna vinnutaps við þjálfun, því er lagt til að bæjarráð synji styrkbeiðninni.%0D
<DIV>Bæjaráð hafnar styrkumsókninni.</DIV>
02
Bæjarráð - 2496. fundur
Frá Erlendi Jónssyni, dags. 11/3, óskað eftir styrk vegna þátttöku í Ólympíukeppni í efnafræði.
<DIV>Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til umsagnar.</DIV>