Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Smiðjuvegur 6, Hólsæð ehf. Beiðni um umsögn skv. lögum nr. 85/2007.

Málsnúmer: 0904202

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2502. fundur

Frá bæjarlögmanni, dags. 28/4, lagt fram bréf sýslumannsins í Kópavogi, dags. 24/4, þar sem óskað er eftir umsögn bæjarráðs vegna umsóknar Hólsæðar ehf., kt. 600409-0930, Arnarhrauni 2, 220 Hafnarfirði, um rekstrarleyfi fyrir veitingastaðinn Matstofu Sóleyjar að Smiðjuvegi 1, en umsóknin fellur undir flokk I, sbr. 4. gr. laga nr. 85/2007.

Bæjarráð samþykkir umsóknina fyrir sitt leyti og staðfestir að afgreiðslutími og staðsetning staðar er innan þeirra marka, sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segir til um.