Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Dalvegur 32, umsókn um matjurtarækt.

Málsnúmer: 0905280

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2506. fundur

Frá garðyrkjustjóra, dags. 26/5, umsögn um erindi varðandi nýtingu lóðarinnar að Dalvegi 32 undir matjurtarækt á vegum áhugamannafélags, samkvæmt fyrirhuguðum leigusamningi milli félagsins og Brimborgar ehf., núverandi lóðarhafa. Engar athugasemdir eru gerðar við þessa nýtingu lóðarinnar, en eðlilegast þykir að starfsemin sé alfarið á vegum áðurnefnds áhugamannafélags, en ekki Kópavogsbæjar.

<DIV&gt;%0D<DIV&gt;Bæjarráð gerir ekki athugsemdir við að lóðin verði nýtt sem matjurtagarður, en að Kópavogsbær komi ekki að starfseminni.</DIV&gt;</DIV&gt;

02

Bæjarráð - 2505. fundur

Frá Friðriki Hansen Guðmundssyni, dags. 19/5, óskað eftir heimild til að semja við lóðarhafa á Dalvegi 32 um nýtingu lóðarinnar undir matjurtagarða.

Bæjarráð vísar erindinu til garðyrkjustjóra til umsagnar.