Önnur mál - fundir leikskólastjóra
Málsnúmer: 1001120
Ferill máls
01
Leikskólastjórar - 10. fundur

Óskað var eftir umræðu um hversu þétt og efnismikil dagskrá leikskólastjórafund er, þannig að oft gefst lítill tími til umræðna og sjaldan hægt að fara á dýptina. Kallað er eftir skilgreiningu um tilgang og markmið fundanna. Gerður Guðmundsdóttir mun senda spurningalista til leikskólastjóranna þar sem leitað verður eftir hugmyndum að skilgreingu á fundunum, tímasetningu, lengd, efnisvali og fleira sem getur skapað skilvirka en jafnframt innihaldsríka fundi. Málið verður tekið til umræðu á fyrsta haustfundi leikskólastjóra 2010.

Kallað er eftir hópefli fyrir hópinn, skoða með ráðstefnur.

02
Leikskólastjórar - 9. fundur

Linda Undergaard, deildarstjóri menningardeildar, fór yfir skráningu á Kópavogsdaga. Leikskólarstjórar eru hvattir til að skrá viðburði og opin hús á vef menningardeildar.

Helga Jónsdóttir, Furugrund, spurði út í innritunarreglur leikskólanna: Eru forgangsreglur varðandi kennara og erlenda foreldra í fullu gildi? Sesselja svaraði: Erlendir foreldrar eiga forgang vegna félagslegra aðstæðna, kemur fram í vinnureglum varðandi úthlutun. Sesselja ræðir málið við innritunarfulltrúa. Kennarar eiga forgang miðað við vinnutíma sinn, ef barn er lengur á að greiða fullt fyrir umfram tímann. Í höndum leikskólastjóra að gæta að því að þessu sé fylgt eftir. Kalla eftir að hægt sé að breyta úthlutuðum tímum í Perlunni, Björk benti á að það vanti skilning hjá innritunarfulltrúa á því að leikskólastjórar þurfa að vera með í úthlutun.

Bílastyrkur leikskólastjóra, er nauðsynlegt að draga skatt af bílastyrk? Ingólfur Arnarson fjármálastjóri telur þess ekki þurfa, ætlaði að athuga málið, hvar er málið statt? Sesselja skoðar málið.

Sesselja Hauksdóttir, leikskólafulltrúi; Á næsta fundi verður kynning á verkefninu Allt hefur áhrif.

Sesselja á leið í 5 vikna frí frá og með 13. maí til og með 19. júní. Síta og Gerður leysa hana af.

Erla Stefanía Magnúsdóttir, Fífusölum: Minnti á að senda póst sem á erindi til beggja stjórnenda, á leikskólar netfangið.

03
Leikskólastjórar - 8. fundur

A: Sigríður Síta Pétursdóttir, kynnti Pedagogista nám, sem er að fara í gang í samstarfi Háskóla Íslands og Reggio Emilia Institutet í Stokkhólmi. Hlutverk pedagogistu er að auka faglega umræðu innan leikskólans og gera starf og nám barnanna sýnilegt, með uppeldisfræðilegum skráningum.

B: Gerður Guðmundusdóttir, fór yfir vinnuferli varðandi sumarstörf í leikskólum næsta sumar. Auka starfsfólk vegna sumarstarfa má ráða í 8 vikur, hver og einn leikskólastjóri hefur frjálsar hendur með hvernig og hvenær þær eru nýttar á sumarleyfistímabilinu. Allar umsóknir vegna sumarstarfa verða að fara í gegnum vef Kópavogsbæjar og sækja um þar.

C: Gerður Guðmundsdóttir, minnti á vinnufund leikskólastjóra þar sem Starfsmannastefna leikskóla Kópavogs verður rædd og útfærð, einnig verða tekin fyrir mál sem varða fjarvistir starfsfólks.

D: Björk Óttarsdóttir, gerði fyrirspurn um hvort ekki væri hægt að ráða aftur saumakonu eins og í fyrra, þar sem það gafst mjög vel. Áhugi er fyrir að fá Dísu aftur. Gerður mun kanna málið.

E: Sesselja Hauksdóttir, fór yfir bréf sem barst frá Umferðaskólanum. Kostnaður við heimsóknir Umferðaskólans fer á hvern leikskóla. Í ljósi sparnaðar og aðhaldsaðgerða er beiðni Umferðaskólans um fræðslu í leikskólunum hafnað. Sesselja mun senda bréf þess efnis.

04
Leikskólastjórar - 7. fundur

A: Edda Valsdóttir, Fögrubrekku, kynnti útkomu bókarinnar ""Börn geta meira en við höldum; Uppeldisfræðilegar skráningar, hvernig læra börn?"". Verkefnið fékk styrk úr Þróunarsjóði leikskóla Menntamálaráðuneytisins og Vísindasjóði Félags leikskólakennara

B: Hrönn Valentínusdóttir, Rjúpnahæð, gerði fyrirspurn um hvernig leikskólinn geti staðið vörð um svefn- og hvíldartíma 1 - 2 ára barna sem eru átta tíma eða lengur í leikskóla, þannig að þau fái að hvílast eins og þau þarfnast? Í námskrá leikskóla Kópavogsbæjar, sem leikskólum ber að fara eftir, kemur fram; að 1-2 ára börn eigi að fái að sofa eins lengi og þau þarfnist og endurnæra líkamann. Samkvæmt niðurstöðum rannsóknar Bjargar Þorleifsdóttur, lífefnafræðingur, hefur svefn ungra barna milli 12 og 14 á daginn ekki áhrif á nætursvefn barnanna.

C: Sesselja Hauksdóttir, lagði til að tveggja daga fundur leikskólastjóra sem vera átti 25. - 26. mars, verði einn dagur, það var samþykkt.

D: Fundarmenn óska eftir að efni leikskólastjórafunda verði betur skilgreint.

05
Leikskólastjórar - 6. fundur

a: Þegar senda á tölvupóst á alla leikskóla, nota hópinn leikskólar í Outlook.

b: nýtt fyrirkomulag á fundarboðun útskýrt.

c: Þar sem ekki er veitt í viðlagasjóð verður bókun t.d vegna afsláttar við 55 ára aldur leikskólakennara ekki framfylgt frá og með áramótum 2009/2010

d: vegna kostnaðar hafa einstaka leikskólar dregið úr sprittun á höndum barna og fullorðinna

e: skiplagning á heimsóknum milli leikskóla verður frestað til hausts 2010

f: Leikskólastjórar undrast veglegt plakati frá Menningardeild m.t.t. sparnaðar.

g: Athugsemd um að þeir leik- og grunnskólar sem eru með skráningarkerfinn Mentor hafi sjálfkrafa uppplýsingar fyrir Hagstofuskýrslu. Fram kom að þessar upplýsingar eru líka í Perlunni.

h: Samræma á útlit á heimsíðum leikskólanna sbr. 1. lið.

i: Ekki er áformað að vinna endurskoðun á fjárhagsáætlun þessa árs. Leikskólastjórar stilli afleysingum t.d. vegna langtímaveikinda starfsfólks í hóf eins og kostur er.

j: Athugasemd kom fram uð að illa hafi verið haldið utan um átaksverkefni sem snéru að leikskólunum og voru á vegum vinnumálastofnunar og bæjarins síðast liðið haust.