Efnisveita fyrir skóla og leikskóla
Málsnúmer: 1011043
Ferill máls
01
Atvinnu- og upplýsinganefnd - 328. fundur
<DIV><DIV><DIV>Undir þessum lið situr fundinn Kristín Dýrfjörð. Hún kynnir fyrir nefndinni efnisveitu fyrir skóla, leikskóla og aðra sem nota margvíslegt efni til skapandi starfa. Efnisveita byggir á þeirri hugmynd að safna hverskyns efnisafgöngum frá fyrirtækjum og heimilum. Efnisafgangar þessir eru síðan flokkaðir og nýttir á nýjan leik í föndur hjá skólum og sambýlum, listamönnum og jafnvel í framleiðslu hjá fyrirtækjum. Fyrirmynd að verkefninu er sótt til Ítalíu og vinnur nú lítill hópur áhugafólks með Kristínu að því að koma slíkri efnisveitu á fót. Hennar hugmynd er að sveitarfélög taki verkefnið upp á sína arma.</DIV><DIV>Kristín mun senda Atvinnu- og upplýsinganefnd erindi um samstarf á næstunni.</DIV></DIV></DIV>