Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Austurkór 77. Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði

Málsnúmer: 1206401

Ferill máls

01

Bæjarráð - 2647. fundur

Fyrir liggja tvær umsóknir um lóðina Austurkór 77, frá Hús Fjárfestingar ehf. og Dverghamar ehf. Skv. 13. gr. úthlutunarreglna mætti fulltrúi sýslumannsins í Kópavogi til að draga um lóðarúthlutun. Umsókn Hús Fjárfestingar ehf. var dregin út vegna lóðarinnar Austurkór 77, sbr. gerðabók sýslumannsins í Kópavogi. Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Hús Fjárfestingum ehf. verði úthlutað lóðinni Austurkór 77.

Bæjarráð samþykkir að gefa Hús Fjárfestingum ehf., kt. 630603-3150, kost á byggingarrétti á lóðinni Austurkór 77.

02

Framkvæmdaráð - 34. fundur

Frá skrifstofustjóra umhverfssviðs. Dregið verður um lóðarúthlutun.

Fyrir liggja tvær umsóknir um lóðina Austurkór 77, þ.e. frá Hús Fjárfestingar ehf. og Dverghamar ehf. Báðir umsækjendur uppfylla skilyrði úthlutunarreglna samkvæmt umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs. Í samræmi við 13. gr. úthlutunarreglna mætti fulltrúi sýslumannsins í Kópavogi til að draga um lóðarúthlutun. Umsókn Hús Fjárfestingar ehf. var dregin vegna lóðarinnar Austurkór 77. Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Hús Fjárfestingum ehf. verði úthlutað lóðinni Austurkór 77.

03

Framkvæmdaráð - 33. fundur

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs. Umsögn um lóðarumsókn.

Dverghamar ehf. sótti um lóðina Austurkór 2 en henni var úthlutað í bæjarstjórn 10. apríl 2012. Umsækjandi, Dverghamar ehf. sótti um lóðina Austurkór 77 til vara. Tveir umsækjendur eru um lóðina Austurkór 77, Dverghamar ehf. og Hús Fjárfestingar ehf. Báðir umsækjendur uppfylla skilyrði úthlutunarreglna. Óskað verður eftir að fulltrúi sýslumanns mæti á næsta fund framkvæmdaráðs og dragi á milli umsækjenda í samræmi við 13. gr. úthlutunarreglna. Samþykkt er að málinu verði frestað til næsta fundar.