Austurkór 102. Umsókn um lóð undir íbúðarhúsnæði
Málsnúmer: 1206442
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2647. fundur
Fyrir liggja tvær umsóknir um lóðina Austurkór 102, frá Varmárbyggð ehf. og Lautarsmára ehf. Skv. 13. gr. úthlutunarreglna mætti fulltrúi sýslumannsins í Kópavogi til að draga um lóðarúthlutun. Umsókn Varmárbyggðar ehf. var dregin út vegna lóðarinnar Austurkór 102, sbr. gerðabók sýslumannsins í Kópavogi. Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Varmárbyggð ehf. verði úthlutað lóðinni Austurkór 102.
Bæjarráð samþykkir að gefa Varmárbyggð ehf., kt. 551106-0390, kost á byggingarrétti á lóðinni Austurkór 102.
02
Framkvæmdaráð - 34. fundur
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs. Umsögn um lóðarumsókn. Dregið verður um lóðarúthlutun.
Fyrir liggja tvær umsóknir um lóðina Austurkór 102, þ.e. frá Varmárbyggð ehf. og Lautasmára ehf. Báðir umsækjendur uppfylla skilyrði úthlutunarreglna samkvæmt umsögn skrifstofustjóra umhverfissviðs. Í samræmi við 13. gr. úthlutunarreglna mætti fulltrúi sýslumannsins í Kópavogi til að draga um lóðarúthlutun. Umsókn Varmárbyggðar ehf. var dregin vegna lóðarinnar Austurkór 102. Framkvæmdaráð leggur til við bæjarráð að Varmárbyggð ehf. verði úthlutað lóðinni Austurkór 102.