Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kópavogsbrún 2-4, umsókn um lóð

Málsnúmer: 1302741

Ferill máls

01

Framkvæmdaráð - 46. fundur

Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs

Borist hafa tvær umsóknir um lóðina Kópavogsbrún 2-4 sem metnar eru fullnægjandi, frá Mótanda ehf., kt. 701101-3820 og Sætrar ehf., kt. 620305-1620 í samræmi við 13. gr úthlutunarreglna samþykktum í bæjarstjórn 11. október 2011 er dregið um hverjum verður gefinn kostur á lóðinni. Fulltrúi sýslumanns er mættur til að draga á milli umsækjanda. Umsókn Sætrar ehf. var dreginn sbr. gerðarbók sýslumannsins í Kópavogi. Framkvæmdaráð leggur til við bæjarstjórn að Sætrar ehf. verði úthlutað lóðinni Kópavogsbrún 2-4.