Skemmuvegur 50, umsókn um lóð
Málsnúmer: 1304038
Ferill máls
01
Framkvæmdaráð - 49. fundur
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs
Lagt fram erindi skrifstofustjóra umhverfissviðs dags. 23. apríl 2013, þar sem gerð er grein fyrir fundi sviðsstjóra og skrifstofustjóra þann 22. apríl sl. með framkvæmdastjóra Sólsteina S. Helgason vegna umsóknar um lóðina Skemmuvegur 50. Sviðsstjóra falið að vinna áfram í málinu. Samþykkt með tveimur atkvæðum. Guðríður Arnardóttir greiðir atkvæði á móti. Guðríður Arnardóttir bókar:<P style="MARGIN: 0cm 0cm 0pt" class=MsoPlainText><FONT size=3 face=Consolas>Undirrituð telur eðlilegt að lóðin sé verðmetin og hún auglýst til úthlutunar eins og allar lóðir á forræði bæjarins. Þannig sé jafnræðis gætt gagnvart þeim sem mögulega hafa áhuga á að nýta þessa lóð.</FONT></P>
02
Framkvæmdaráð - 48. fundur
Frá skrifstofustjóra umhverfissviðs
Sviðsstjóra umhverfissviðs falið að ræða við umsækjendur.