Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Evrópsk ungmennavika-60 ára afmæli Kópavogsbæjar.

Málsnúmer: 1504539

Ferill máls

01

Forvarna- og frístundanefnd - 28. fundur

Á fundinn mættu fulltrúi félagmiðstöðvaráðs Kópavogs og forstöðumaður félagsmiðstöðvarinnar Jemen og skýrðu frá fyrirhugaðri dagskrá félagsmiðstöðva barna- og unglinga í tilefni af evrópskri ungmennaviku og 60 ára afmæli Kópavogsbæjar. Hátíðin verður haldin þann 8. maí og fékk félagsmiðstöðvaráðið 200.000 kr. styrk frá Evrópu unga fólksins vegna viðburðarins. Félagsmiðstöðvaráðið skipuleggur alla dagskrána og með aðstoð starfsmanna félagsmiðstöðva. Leikjasmiðjur og dansleikur, skemmtileg og metnaðarfull dagskrá fyrir alla unglinga í Kópavogi.$line$Á fundinn mætti einnig forstöðumaður Molans og skýrði frá fyrirhugaðri dagskrá ungmennahússins Molans í tilefni af evrópskri ungmennaviku og 60 ára afmæli Kópavogsbæjar, Allir út! Viðburðurinn verður haldinn þann 7. maí og fékk ungmennahúsið 200.000 kr. styrk frá Evrópu unga fólksins vegna viðburðarins. Fimmtudagseftirmiðdagur á planinun; tónlist, hjólabretti og götulistamenn verða leiðbeinendur í smiðjum. Lagt til að gestum félagsmiðstöðva eldri borgara verði boðið kaffisopa.