Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kórskóli Langholtskirkju. Umsókn um aðild að Frístundastyrkjakerfi Kópavogsbæjar

Málsnúmer: 1611137

Ferill máls

01

Íþróttaráð - 65. fundur

Lagt fram erindi í tölvupósti dagsett 3.nóv.2016 frá Kórskóla Langholtskirkju þar sem óskað er eftir því við íþróttaráð Kópavogs, að skólinn geti gerst aðili að Frístundakerfi Kópavogsbæjar vegna þeirra barna úr Kópavogi sem taka þátt í starfi Kórsins.

Meginmarkmið Kórskólans er að bjóða upp á vandaða og faglega söngkennslu fyrir börn og unglinga sem mörg hver leita síðar í sérhæft söngnám enda mikið af farsælasta söngfólki þjóðarinnar stigið sín fyrstu skref í söng í barnakórum Langholtskirkju.

Íþróttaráð samþykkir umsóknina og veitir Kórskóla Langholtskirkja aðild að frístundastyrkjakerfi Kópavogsbæjar.