Til baka í fundargerðir
HK-blakdeild, umsókn um æfingatíma í íþróttamannvirkjum 2017 - 2018
Málsnúmer: 1706501
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 73. fundur
Lögð er fyrir beiðni blakdeildar HK þar sem óskað er eftir 4 tímum í Íþróttahúsi Kópavogsskóla og sama tímafjölda í Fagralundi eins og á síðasta tímabili.
Íþróttaráð samþykkir að deildin fái úthlutað sama tímafjölda í Kópavogsskóla og Fagralundi og á síðasta tímabili til æfinga og keppni. Tímar sem deildin hafði til ráðstöfunar á sunnudögum gætu hins vegar fallið niður.