Til baka í fundargerðir
Breiðablik-körfuknattleiksdeild, umsókn um æfingatíma í íþróttamannvirkjum 2017 - 2018
Málsnúmer: 1706508
Ferill máls
01
Íþróttaráð - 73. fundur
Lögð fram beiðni körfuknattleiksdeildar, þar sem óskað er eftir 5 tímum í Íþróttahúsi Kársnes, 11 tímum í Lindaskóla, 2 tímum í Kórnum og 6 tímum í Fagralundi á næsta vetri.
Íþróttaráð getur orðið við beiðni deildarinnar um 5 tíma í Kársnesi og ósk deildarinnar um fjölda tíma í Lindaskóla (11 klst). Tími frá 15-16 á föstudögum og tveir tímar á sunnudegi (12-14) verða þó að færast yfir á laugardag. Deildin fær úthlutað 4 tímum í Fagralundi fyrir yngstu flokka deildarinnar á föstudögum 15-17 og 2 tíma á sunnudögum. Ekki er hægt að verða við ósk deildarinnar um tíma í Kórnum.