Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Menningar- og þróunarráð - 14. fundur

í Fannborg 2, Bæjarráðsherbergi

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Hafsteinn Karlsson - formaður
  • Hjálmar Hjálmarsson - aðalfulltrúi
  • Garðar Heimir Guðjónsson - aðalfulltrúi
  • Helga Guðrún Jónasdóttir - aðalfulltrúi
  • Una María Óskarsdóttir - aðalfulltrúi
  • Eiríkur Ólafsson - varafulltrúi

Ritari

  • Sigurður Björnsson

Dagskrá fundar

01

Fjárhagsáætlun menningar- og þróunardeildar 2012

Ingólfur Arnarson fjármála- og hagsýslustjóri sat fundinn undir þessum lið og fór yfir fjárhagsáætlanir fyrir árið 2012 vegna menningar- og þróunarmála. Ráðið óskar eftir nákvæmri sundurliðun á kostnaði við hátíðahöld 17. júní 2011.Ráðið áréttar að vegna sérstakra aðstæðna í efnahagslífinu er hluta af fjámunum Lista-og menningarsjóðs, á árinu 2012, varið til verkefna sem ekki hafa að jafnaði verið á verkefnaskrá sjóðsins.

02

Salurinn - listi yfir þann búnað sem þarf að endurnýja.

Formaður ráðsins lagði fram forgangsraðaðan tækjalista vegna nauðsynlegrar endurnýjunar á tæknibúnaði fyrir tónlistar- og ráðstefnuhald. Ráðið samþykkir listann og felur forstöðumanni Salarins að leita tilboða og leggja fyrir ráðið.

03

Málefni Bókasafns Kópavogs 2011

Geymsluaðstaða Bókasafns Kópavogs er orðin óviðunandi. Ráðið telur mikilvægt að viðunandi lausn verði fundin á geymslumálum safnsins.

04

Lista- og menningarsjóður. Auglýsing vegna úthlutunar.

Fyrir liggur samkvæmt nýjum reglum um úthlutanir Lista- og menningarsjóðs að auglýsa skal eftir styrkjum að hausti fyrir heilt ár. Þar sem um nýjar reglur er að ræða (sem samþykktar voru fyrir viku) verður að auglýsa fyrir árið 2012 í janúar n.k. Síðan verður auglýst næsta haust fyrir árið 2013.

05

Framtíðarhópur SSH

Lagt fram til kynningar til fyrirtöku síðar.