Sérnefnd vegna tilflutnings málefna fatlaðra - 7. fundur
í Fannborg 4, fundarherbergi 2. hæð
Mætt til fundar
Ritari
- Aðalsteinn Sigfússon
Dagskrá fundar

Jón Ingi Guðmundsson tæknifræðingur situr fundinn undir þessum lið.

Fyrir fundinum liggur greinargerð Rannveigar Maríu Þorsteinsdóttur verkefnastjóra og tillögur og kostnaðaráætlanir frá tæknideild Kópavogsbæjar um lausn á húsnæðismálum íbúa á heimilinu á Borgarholtsbraut.

Nefndin samþykkir fyrir sitt leyti að útbúnar verði 5-6 einstaklingsíbúðir í Skjólbraut 1a og óskar eftir, með hliðsjón af fyrirliggjandi upplýsingum, að söluandvirði Borgarholtsbrautar verði framlag ríkisins til endurbóta og breytinga. Með hliðsjón af óviðunandi aðstöðu á Borgarholtsbraut og í ljósi erfiðrar fjárhagsstöðu sveitarfélagsins leggur nefndin til að þessi leið verði farin.

Fyrir liggur tillaga um ráðningu Jóhönnu Lilju Ólafsdóttir í fullt starf í þjónustudeild fatlaðra frá og með 1. janúar 2011, en hún hefur verið í 50% starfi við undirbúning yfirfærslunnar og í 50% starfi sem forstöðumaður frístundarúrræðis fyrir fatlaða í Smáraskóla frá 1. nóvember s.l.

Nefndin samþykkir ráðningu hennar fyrir sitt leyti.