Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Umhverfisráð - 478. fundur

Fannborg 6, 2.hæð

Mætt til fundar

Ritari

  • Hólmfríður Þorsteinsdóttir

Dagskrá fundar

01

Umhverfisviðurkenningar 2009

Á fundi umhverfisráðs 4. maí 2009 lagði Skipulags- og umhverfissvið til við umhverfisráð að sviðinu verði falið að annast undirbúning vegna veitingu umhverfisviðurkenninga ársins. Lögð voru fram drög að tilkynningu þar sem íbúum var gefinn kostur á að senda inn tilnefningar vegna umhverfisviðurkenninga. Einnig var tekin ákvörðun um hvenær afhending viðurkenninga mun fara fram.Umhverfisráð samþykkti að fela skipulags- og umhverfissviði að leita tilboða á hönnun og gerð á viðurkenningaskjölum og merkjum. Viðurkenningarnar fara fram seinni hluta ágústmánaðar.Tilboð í gerð umhverfisviðurkenninga og fróðleiksskiltis lagt fram ásamt tilnefningum til umhverfisverðlauna.Á fundi umhverfisráðs 8. júní 2009 var þetta bókað: Á fundi umhverfisráðs dags. 4. maí 2009 var ákveðið að leita tilboða í hönnun og gerð viðurkenningaskjala og fróðleiksskilta ráðsins fyrir árið 2009. Haft var samband við sex auglýsingastofur en tilboð bárust frá fimm auglýsingastofum. Við yfirferð tilboða á fundi ráðsins voru tvö þeirra dæmd ógild þar sem hugmyndir að útliti og gerð viðurkenningaskjala fylgdu ekki verðtilboðum. Eftirfarandi gild tilboð í viðurkenningaskjöl eru frá:1. Fíton 1- 391.460 kr.2. Fíton 2- 269.450 kr.3. Frjálsri miðlun - 211.650 kr.4. Næst - 319.965 kr.Öll ofangreind verð eru með VSK. Umhverfisráð leggur til við bæjarráð að tekið verði tilboði lægstbjóðanda í hönnun og gerð viðurkenningaskjala fyrir árið 2009.Farið var í skoðunarferð og þeir staðir skoðaðir sem voru tilnefndir til umhverfisverðlauna. Á fundi bæjarráðs 19. júní 2009 var tillaga umhverfisráðs samþykkt. Á fundi umhverfisráðs 6. júlí 2009 er erindið lagt fram að nýju.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Lagðar fram tilnefningar að viðurkenningum árið 2009.&nbsp;Samþykkt. Umhverfisráð samþykkir að verðlaunaafhendingin mun fara fram 20. ágúst kl 16:00. Ennfremur er lögð fram tillaga umhverfisráðs&nbsp;að götu ársins 2009.&nbsp;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

02

Fróðleiksskilti 2009

Á fundi umhverfisráðs 4. maí 2009 kynnti garðyrkjustjóri tillögur um staðsetningu næstu fróðleiksskilta í Kópavogsbæ.Umhverfisráð samþykkti að fela Skipulags- og umhverfissviði að leita tilboða við hönnun og gerð fróðleiksskilta. Ákveðið var að setja upp stórt skilti við Elliðavatn.Tilboð í verkefnið lögð fram.Á fundi umhverfisráðs 6. júlí 2009 var þetta bókað: Á fundi umhverfisráðs dags. 4. maí 2009 var ákveðið að leita tilboða í hönnun og gerð viðurkenningaskjala og fróðleiksskilta ráðsins fyrir árið 2009. Haft var samband við sex auglýsingastofur en tilboð bárust frá fimm auglýsingastofum. Við yfirferð tilboða á fundi ráðsins voru 3 þeirra dæmd ógild þar sem hugmyndir að útliti og gerð viðurkenningaskjala fylgdu ekki verðtilboðum. Í hönnun og gerð fróðleiksskilta bárust eftirfarandi gild tilboð:1. Fiton A-útgáfa - 183.326 kr.2. Fiton B-útgáfa - 320.276 kr.3. Næst - 199.200 kr.Öll ofangreind verð eru með VSK. Umhverfisráð leggur til við bæjarráð að tekið verði tilboði lægstbjóðanda í hönnun og gerð fróðleiksskilta fyrir árið 2009. Á fundi bæjarráðs 11. júní 2009 var tillaga umhverfisráðs samþykkt. Á fundi umhverfisráðs 6. júlí 2009 er málið lagt fram á ný ásamt tillögu að texta á fróðleiksskiltið.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Skiltið sem sett verður upp í ár mun aðallega fjalla um sögu og menningu svæðisins. Umhverfisráð lagði til að sumarið 2010&nbsp;verði sett&nbsp;annað fróðleiksskilti við Elliðavatn sem lýsir vistkerfi vatnsins (lífríki og umhverfi). </DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

03

Grjótnám í Lækjarbotnum

Á fundi skipulagsnefndar 1. apríl 2008 er lagt fram erindi S. Helgason dags. 22. janúar 2008. Í erindinu felst að óskað er eftir endurnýjun samnings um leyfi til námuvinnslu á svæðinu. Skipulagsefnd samþykkti að vísa erindinu til umfjöllunar í umhverfisráði.Á fundi umhverfisráðs 7. apríl 2008 var óskað eftir heildstæðum gögnum yfir umfang verkefnisins með lýsingu á fyrri samningum um námuvinnsluna, núverandi stöðu í námunni og fyrirhugaðri viðbótarvinnslu, ásamt áætlun um frágang námu ef leyfi verður veitt til frekari vinnslu.Á fundi umhverfisráðs 20. október 2008 var skipulags- og umhverfissviði falið að boða til fundar með stjórnendum S Helgasonar. Fundur var haldinn með stjórnenda S Helgasonar þann 17. desember 2008. Á fundinum var ákveðið að ganga frá drögum að samningi og framkvæmdaráætlun að frágangi námunnar. Á fundi umhverfisráðs 26. janúar voru lögð fram drög að samningi og framkvæmdaráætlun um vinnslu og frágang á námu í Lækjarbotnum dags. 22. janúar 2009. Umhverfisráð óskar eftir að tekið verði saman minnisblað um áður gerða samninga og ferli málsins. Einnig að fá mat á lagalegri stöðu eldri samnings um námuvinnslu á svæðinu.Á fundi umhverfisráðs 23. febrúar 2009 var umsögn frá skrifstofustjóra framkvæmda- og tæknisviðs lögð fram um lagalega stöðu áður gerðra samninga. Tekið hefur verið saman ferli málsins og ný drög af samningi kynnt. Umhverfisráð samþykkir stækkun á námusvæði samkv. uppdrætti og samningi skipulags- og umhverfissviðs 20. febrúar 2009 og vísar málinu til bæjarráðs. Vakin er athygli á að enn hefur ekki verið tekin ákvörðun um vinnslugjald. Umhverfisráð leggur til að málinu verði vísað til framkvæmda- og tæknisviðs varðandi tillögu þar að lútandi. Á fundi bæjarráðs 16. apríl 2009 var tillaga umhverfisráðs samþykkt.Á fundi umhverfisráðs 6. júlí 2009 var erindið lagt fram að nýju ásamt samningi á milli Kópavogsbæjar og SH Helgasonar sem nú inniheldur vinnslugjald

<DIV&gt;<DIV&gt;Samningsdrög samþykkt og námugjald og vísað til bæjarráðs.</DIV&gt;</DIV&gt;

04

Ólafsvíkuryfirlýsingin. Staðardagskrá 21.

Á fundi bæjarráðs 24. janúar 2008 var lagt fram erindi frá Landsskrifstofu Staðardagskrár 21 á Íslandi dags. 18. janúar 2008. Erindið varðar Ólafsvíkuryfirlýsinguna, sem varð til á 3. landsráðstefnunni um Staðardagskrá 21, í Ólafsvík 12.-13. október 2000. Hvatt var til að yfirlýsingin verði tekin til formlegrar umræðu og afgreiðslu hafi það ekki þegar verið gert. Bæjarráð frestaði afgreiðslu erindisins.

<DIV&gt;<DIV&gt;<DIV&gt;Á fundi umhverfisráðs 6. júlí 2009 óskar umhverfisráð þess að bæjarráð taki málið upp að nýju og samþykki að skrifa undir Ólafsvíkuryfirlýsinguna.</DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

05

Friðlýsing í Skerjafirði

Borist hafa upplýsingar um að Umhverfisstofnun og Bæjarstjórn Garðabæjar hafi auglýst tillögu að friðlýsingu Skerjafjarðar innan bæjarmarka Garðabæjar. Óskar umhverfisráð Kópavogs eftir upplýsingum frá Garðabæ vegna málsins.

<DIV&gt;<DIV&gt;Umhverfisráð óskar eftir því að tekin verði saman umsögn um framlagða tillögu. Umhverfisráð vekur athygli bæjarráðs á því hvort hér sé ekki um tillögu að ræða sem þarfnast umræðu á vettvangi SSH?</DIV&gt;</DIV&gt;

06

Garðaganga um trjásafnið í Meltungu

Vakin er athygli á garðagöngu um trjásafnið í Meltungu þann 22. júlí 2009. Gangan er á vegum Garðyrkjufélags Íslands og leiðsögumenn verða Garðyrkjustjóri Kópavogs og Guðmundur Vernharðsson, garðyrkjufræðingur. Gangan hefst við Gróðrastöðina Mörk kl 20:00.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

07

Hjóladagur-samgönguvika

Lagt fram erindi Skipulags- og umhverfissviðs að unnið verði í samstarfi við önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæðinu að hjóladegi og samgönguviku sem í ár verður vikuna 16- 22. september. Lagt er til að hjóladagur verði með svipuðu sniði og áður og hjólreiðamönnum boðið uppá hressingu við Gerðasafn.

<DIV&gt;<DIV&gt;Lagt fram.</DIV&gt;</DIV&gt;

08

Fundargerðir stjórnar Reykjanesfólkvangs 2009

Fundargerðir Reykjanesfólkvangs 29. janúar, 26. febrúar, 31. mars, 28. maí og 11. júní 2009 lagðar fram.

<DIV&gt;<DIV&gt;&nbsp;</DIV&gt;</DIV&gt;

09

Göngustígur við Lindir IV

Umhverfisráð leggur til við bæjarráð að ráðin verði bót á göngustígatengingum á milli undirganga við Lindir IV við Lindahverfi fyrir ofan.

<DIV&gt;<DIV&gt;</DIV&gt;</DIV&gt;

10

Ráðstefna um vistvæn innkaup í mars 2009

Á fundi umhverfisráðs 26. janúar 2009 voru lagðar fram upplýsingar um ráðstefnu á vegum Reykjavíkurborgar og ICLEI (alþjóðleg samtök sveitarstjórna um sjálfbærni). Ráðstefnan var haldin 25.-27. mars n.k. og fjallaði m.a. um nýjar leiðir við framleiðslu á vörum og þjónustu sem geta leitt til minni losunar á gróðurhúsalofttegundum. Umhverfisráð samþykkti að fulltrúi sviðsins sækti ráðstefnuna. Fulltrúi umhverfisráðs heldur kynningu um ráðstefnuna.Frestað.Á fundi umhverfisráðs 6.júlí er málið lagt fram á ný.

<DIV&gt;<DIV&gt;Umhverfisráð þakkar góða kynningu.</DIV&gt;</DIV&gt;