Umhverfisráð - 498. fundur
í Fannborg 6, fundarherbergi 2. hæð
Mætt til fundar
Ritari
- Hólmfríður Þorsteinsdóttir
Dagskrá fundar
Fundargerð bæjarráðs 9. desember 2010:$line$1001169 - Umhverfisstefna Kópavogs$line$Bæjarráð samþykkir drög að umhverfisstefnu fyrir sitt leyti en óskar umsagnar nefndar og ráð bæjarins áður en stefnan fer til afgreiðslu bæjarstjórnar.$line$1006080 - Grænt bókhald 2009$line$Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar. $line$Fundargerð bæjarstjórnar 14. desember 2010:$line$Lagt fram.

Á fundi umhverfisráðs 17. janúar 2011 var farið yfir stöðu verkefnisins við Þríhnúka, framvindu undirbúningsvinnu fyrir skilgreiningu, samanburð á friðlýsingu og hverfisvernd og minnisblað Skipulags- og umhverfissviðs dags. 27. ágúst 2010 um verklag fyrirhugaðrar skipulagsvinnu við Þríhnúka og næstu skref.

Lagt fram og kynnt.

Á fundi umhverfisráðs 15. nóvember 2010 var lagt fram erindi frá Heilbrigðiseftirliti Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis dags. 8. nóvember 2010 um starfssvið stjórnar skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.$line$Með tilvísan í lög nr. 44/1999 um náttúruvernd og auglýsingu um fólkvang í Bláfjöllum í Stjórnartíðindum B- deildar nr. 173/1985 vill umhverfisráð benda á mikilvægi þess að yfirfara allt verklag um stjórn fólkvangsins. Umhverfisráð óskar eftir því að sviðsstjóri Skipulags- og umhverfissviðs ræði við stjórn skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins og Bláfjallafólkvangs og Umhverfisstofnun þar að lútandi.$line$Á fundi umhverfisráðs 17. janúar 2011 var staða málsins kynnt og drög að bréfi dags. 17. janúar 2011 til Umhverfisstofnunar lagt fram.

Umhverfisráð samþykkir að senda bréf til Umhverfisstofnunar byggt á þeim atriðum sem komu fram á fundinum.

Á fundi umhverfisráð 17. janúar 2011 voru lögð fram drög um breytingu á lögum um náttúruvernd, nr. 44/1999, með síðari breytingum. Frumvarpsdrögin eru opin öllum til umsagna og er umsagnafrestur til og með 21. janúar 2011. Drög að umsögn frá umhverfisráði lögð fram.

Umhverfisráð samþykkir að senda framlagðar athugasemdir á Umhverfisráðuneytið.

Á fundi umhverfisráðs var lagt fram erindi frá Umhverfisstofnun dags. 15. september 2010. Boðað var til 3. lögbundis fundar Umhverfisstofnunar og náttúruverndarnefnda sveitarfélaga í Borgarnesi, 29. október 2010.$line$Lagt fram og kynnt.$line$Á fundi umhverfisráðs 15. nóvember 2010 var málið lagt fram á ný.$line$Formaður umhverfisráðs greindi frá nýliðnum fundi.$line$Á fundi umhverfisráðs 17. janúar 2011 voru niðurstöður hópavinnu lagðar fram.

Lagt fram og kynnt.

Á fundi umhverfisráðs 15. nóvember 2011 voru lögð fram drög sviðsstjóra að starfs- og fjárhagsáætlun Skipulags- og umhverfissviðs 2011.$line$Sviðsstjóri gerði grein fyrir drögum starfs- og fjárhagsáætlun 2011. Umhverfisráð fór yfir verkefnalistann og gerði athugasemdir. Umhverfisráð felur sviðsstjóra að skila fyrirliggjandi tillögu til bæjarráðs.$line$Á fundi umhverfisráðs 17. janúar 2011 var farið yfir niðurstöður fjárhagsáætlunar 2011.

Frestað vegna fyrirhugaðra breytinga á ráðum og nefndum.

1011345 - Friðlýsing Skerjafjarðar
Greint er frá fundi er haldinn var með sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu 13. janúar 2011 sem hafa ekki friðlýst í Skerjafirðinum.