Umhverfisráð - 485. fundur
Fannborg 6, 2.hæð
Mætt til fundar
Ritari
- Hólmfríður Þorsteinsdóttir
Dagskrá fundar
Á fundi umhverfisráðs 16. nóvember var lagt fram erindi frá stjórn Reykjanesfólkvangs, dags. 12/10, þar sem óskað er umsagnar um fyrirhugað verkefni VSÓ Ráðgjafar við Eldfjallagarð á Reykjanesskaga.$line$Bæjarráð á fundi 22. október 2009 vísaði erindinu til sviðsstjóra skipulags- og umhverfissviðs til umsagnar.$line$Lagt fram og frestað.$line$Á fundi bæjarráðs 26. nóvember 2009 samþykkti bæjarráð samhljóða tillögu um að formaður umhverfisráðs fylgi málinu eftir og meti framlag Kópavogsbæjar til verkefnisins.$line$Á fundi umhverfisráðs 14. desember 2009 var málið lagt fram að nýju.$line$Umhverfisráð samþykkti erindi stjórnar Reykjanesfólkvangs þess efnis að sveitarfélagið taki þátt þátt í verkefninu ""Eldfjallagarður"".$line$Á fundi umhverfisráðs 25. janúar 2009 er erindið lagt fram á ný ásamt tillögu að framlagi Kópavogsbæjar.

Umhverfisráð leggur til við bæjarráð að styrkur til verkefnisins Eldfjallagarður verði 1.745.000 kr. eða samkvæmt kostnaðarskiptingu miðað við mannfjölda.

Á fundi bæjarráðs 7. janúar 2010 var lagt fram erindi Náttúrustofu Vesturlands dags. 14. des. ´09 og geinargerð um fyrirhugaða umhverfisvottun Íslands.$line$Bæjarráð vísaði erindinu til umhverfisráðs til úrvinnslu. Í erindinu kemur fram að lagt er til að Ísland verði fyrsta umhverfisvottaða landið í heimi.$line$

Umhverfisráði líst vel á framlagða tillögu. Verkefnið er ögrandi en vel framkvæmanlegt. Skipulags- og umhverfissviði er falið að fylgjast með framvindu verkefnisins og kynna ráðinu eftir föngum.

Lagt fram til kynningar erindi garðyrkjustjóra varðandi frágang lóðar við stöðvarhús Orkuveitu Reykjavíkur í Hnoðraholti.

Lagt fram og kynnt.

Börn í heilsuleikskólanum Urðarhóli í Kópavogi og nemendur Kársnesskóla tóku þann 22. janúar 2010 formlega í notkun aðstöðu í skógarlundi á Kópavogstúni sem hefur hlotið nafnið Ævintýraskógur. Komið hefur verið upp eldstæði og vönduðum bekkjum skammt frá gamla Kópavogsbýlinu og skólagörðunum sem notað verður við útikennslu í skólunum. $line$Ævintýraskógurinn verður aðstaða útináms í Kársnesskóla og Urðarhóli. Þar geta nemendur og kennarar gefið hugmyndafluginu lausan tauminn og nýtt svæðið bæði til náms, hreyfingar og útiveru.$line$

Lagt fram til kynningar.

Lögð er fram tillaga að stefnumörkun í umhverfismálum í Kópavogi dags. 21. janúar 2010. Í tillögunni koma fram ýmis átaksverkefni sem marka framtíðarsýn umhverfismála í Kópavogi.

Umhverfisráð felur umhverfisfulltrúa að vinna áfram að henni.