Sumarnámskeið
Skráningar á sumarnámskeið á vegum Kópavogsbæjar hófust á sumardaginn fyrsta 23. apríl 2026.
Fristund.is er nýr þjónustuvefur sem birtir allt frístundastarf á höfuðborgarsvæðinu á einum stað.
Fyrir yngstu börnin
Gæsluvellir eru fyrir börn á aldrinum 20 mánaða til 6 ára og eru starfræktir yfir sumarlokun leikskóla. Starfsemin fer eingöngu fram utandyra og þurfa börn því að vera klædd eftir veðri.
Gjald er 500 kr. fyrir hvert skipti og er eingöngu tekið við kortagreiðslu.
Við fyrstu komu þarf að fylla út blað með upplýsingum um barn og forsjáraðila. Mikilvægt er að tilkynna komu og brottför barns til starfsfólks.
- Ekki eru aðstæður til bleiuskipta á gæsluvöllum.
- Öll börn eru slysatryggð og starfsfólk hefur hlotið þjálfun í skyndihjálp.
Athugið að fjöldi barna getur verið takmarkaður.
Opnunartími
Opnun gæsluvalla 2026 er frá 9. júlí til og með 6. ágúst.
Opið alla virka daga:
- Frá 9:00 til 12:00
- Frá 13:00 til 16:00
Staðsetning: Lækjavöllur við Dalsmára 23
Sími: 618 8541
Sumarnámskeið á vegum Kópavogsbæjar
Skráning á námskeið á vegum Kópavogsbæjar fer fram í gegnum Abler.
Upplýsingar um skráningar á önnur leikja- og íþróttanámskeið er að finna á heimasíðum viðkomandi aðila/félags eða á Fristund.is
Sumardvöl í Frístund er fyrir verðandi nemendur í 1. bekk grunnskóla. Sumardvölin er skipulögð í anda þeirrar stefnu að skapa bætta samfellu milli leik - og grunnskóla.
Markmið Sumardvalar er að stuðla að vellíðan, öryggi og jákvæðri aðlögun nemenda að grunnskólanum, bæði félagslega og námslega, áður en formlegt skólastarf hefst.
Sumardvöl í Frístund er starfrækt í tvær vikur í ágúst áður en skóli hefst og er opin frá klukkan 08:00 til 16:00. Tekið er á móti börnunum milli klukkan 08:00 og 09:00.
Boðið er upp á heitan mat í hádeginu og hressingu fyrir og eftir hádegi.
Sumarfrístund í Hörðuvallaskóla
Í sumar býður Frístund Hörðuheima upp á Sumarfrístund fyrir börn fædd 2016 – 2019. Í sumarfrístund er lögð áhersla á öryggi og kunnuglegt umhverfi í bland við lærdóm, leik og gleði. Mikill metnaður er settur í að hafa dagskrána fjölbreytta og skemmtilega þannig að öll geti fundið viðfangsefni við hæfi. Sumarfrístund byggist á útivist, hreyfingu, leikjum, ferðum og ýmsum ævintýrum í nær- og fjærumhverfi.
Hægt er að skrá börn á biðlista þegar skráningarþak hefur verið fyllt og hefur þá forstöðumaður samband við forsjáraðila ef pláss losnar.
Opnunartími er frá kl 09:00 – 16:00.
Boðið er upp á gæslu frá kl 08:00 – 09:00 og 16:00 – 17:00, aukagjald greiðist fyrir gæslu.Námskeiðsgjald er 13.000 kr. vikan.
Gjald fyrir gæslu kostar 620 kr. hver klukkustund.Námskeiðsgjald og systkinaafsláttur greiðist við skráningu.
Forstöðu fyrir Sumarfrístund veita Margrét Stefanía Þorkelsdóttir, Thelma Lind Antonsdóttir Arelakis og Kristín Lillý Kjærnested.Hægt er að óska eftir nánari upplýsingum hjá Hörðuheimum í gegnum tölvupóst eða í síma 825 5947.
Skólagarðar hafa verið starfræktir á vegum Kópavogsbæjar í um fimmtíu ár. Þeir eru ætlaðir börnum á aldrinum 6–13 ára þar sem þau fá tækifæri til að rækta eigin matjurtir með leiðsögn starfsfólks. Börnin fá kartöfluútsæði, plöntur og fræ og uppskera síðan afrakstur sumarsins sjálf.
Kostnaður fyrir garðinn er 6.855 krónur.
Opnunartími
Skólagarðarnir eru opnir frá byrjun júní fram í miðjan ágúst.
Opnunartími:
- Mánudaga til fimmtudaga kl. 8:00–12:00 og 13:00–16:00
- Föstudaga kl. 8:00–12:00
Skólagarðarnir eru í umsjá Vinnuskólans í Kópavogi. Skrifstofur eru í Askalind 5 og er opnar frá 10. maí til 31. ágúst:
- Mánudaga til fimmtudaga kl. 8:00–16:00
- Föstudaga kl. 8:00–14:00
Staðsetning
Garðarnir eru tveir og staðsettir:
- Við Víðigrund í Fossvogsdal
- Við Dalveg í Kópavogsdal
Skráning
Skráning fer fram að vori í gegnum Sportabler. Eftir skráningu birtist fljótlega greiðsluseðill í heimabanka.
Námskeið á smíðavelli eru fyrir börn fædd 2014 – 2019 og eru frá kl. 09.00 – 12.00 og kl. 13.00 – 16.00 alla virka daga.
Námskeiðin fyrir hádegi eru fyrir 7 til 9 ára börn og eftir hádegi fyrir 10 til 12 ára.
Á smíðavellinum fá þátttakendur verkfæri, efni og aðstoð við smíði smáhluta og við kofasmíði.
Í lok hvers námskeiðs mega börnin fara heim með það sem þau smíða en flutningur á kofum barnanna er á ábyrgð foreldra/forráðamanna.
Námskeiðsgjald er 10.200 kr. hver vika og greiðist við skráningu. Systkinaafsláttur reiknast við skráningu. Hámarksfjöldi á hvert námskeið eru 15 – 20 börn.
Vakin er athygli á að afbókanir á smíðavöll þurfa að berast með viku fyrirvara, að öðrum kosti fást námskeiðsgjöld ekki endurgreidd.
Flokkstjóri smíðavallar veitir nánari upplýsingar í gegnum tölvupóst eða í síma 691 5203.
Sumarsmiðjur fyrir börn fædd 2013 – 2015 og sumaropnun fyrir unglinga fædd 2010 - 2012.
Yngri hópur
Með yngri hópinn er horft til þess að hafa fjölbreyttar smiðjur sem tengjast afþreyingu, föndri, útivist, hreyfingu og ýmislegt fleira.
Eldri hópur
Fyrir eldri hópinn eru hefðbundnar dag- og kvöldopnanir ásamt hádegisopnunum fyrir vinnuskólann, sértækt hópastarf ásamt útilegu og öðrum sumarlegum viðburðum.
Hámarksfjöldi í hverja sumarsmiðju eru 20 börn.
Gjaldskrá í smiðjurnar er breytileg og tekur mið af viðfangsefni hverrar smiðju. Námskeiðsgjald greiðist við skráningu.
Sumarsmiðjur I kr. 1.130
Sumarsmiðjur II kr. 2.200
Sumarsmiðjur III kr. 3.500Vakin er athygli á að afbókun í smiðjur þarf að berast með viku fyrirvara, að öðrum kosti fæst smiðjugjald ekki endurgreitt.
Sumaropnun í félagsmiðstöðvum.
Á sumrin er mikið lagt upp úr öflugu hópastarfi, útivist, og góðu samstarfi við Vinnuskóla Kópavogs ásamt því að halda úti metnaðarfullri dag- og kvöld dagskrá. Hver og ein félagsmiðstöð verður með sína dagskrá og hópa í sumar og forstöðumenn senda á forsjáraðila í tölvupósti í sumarbyrjun til upplýsinga.
Umsjón og ábyrgð með sumarstarfi Félkó er í höndum forstöðumanns í hverri félagsmiðstöð.
Félagsmiðstöðvar
Dimma Vatnsendaskóla
Ekkó Kársnesskóla
Fönix Salaskóla
Igló Snælandsskóla
Jemen Lindaskóla
Kjarninn Kópavogsskóla
Kúlan Kóraskóla
Pegasus Álfhólsskóla
Þeba SmáraskólaForstöðumenn félagsmiðstöðva í hverju skólahverfi hafa umsjón með sumarsmiðjum og sumaropnun í félagsmiðstöðvum og veita nánari upplýsingar.
Menningarkrakkar (6 - 9 ára)
Skapandi og skemmtilegt námskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 9 ára (1. – 4. bekk).
Á námskeiðinu er boðið upp á vettvangsferðir og spennandi listsmiðjur.
Námskeiðið fer fram dagana 18. – 21. ágúst frá klukkan 09:00 – 12:00Námskeiðsgjald er 11.300 kr. og systkinaafsláttur reiknast við skráningu.
Hámarksfjöldi barna á námskeiðinu er 18 börn.ATH! Börnin þurfa að hafa með sér hollt nesti, hlífðarföt og stígvél.
Ofurhetjuverkefni í Bókasafni Kópavogs
Í Bókasafni Kópavogs verður verkefnið umhverfisofurhetja í allt sumar. Umhverfisofurhetjan er vitundarvakningarverkefni og er samstarfsverkefni bókasafnsins og Náttúrfræðistofu Kópavogs, þar sem börn geta leyst fimm umhverfistengd verkefni. Sérstök Ofurhetjunámskeið verða svo á bókasafninu í ágúst.Ofurhetju - Origami námskeið verður þriðjudaginn 19. ágúst kl. 13.00 - 15.00.
Ofurhetju - grímu námskeið miðvikudaginn 20. ágúst kl. 13.00 - 15.00
Ofurhetju - perl námskeið fimmtudaginn 21. ágúst kl. 13.00 - 15.00Uppskeruhátíð sumarlesturs verður miðvikudaginn 20. ágúst kl. 17.00, þar verður fagnað lestrarhetjum sumarsins og Bjarni Fritzson verður gestur þar.
Bókasafns Kópavogs
Hamraborg 6a
Sími: 441 6800Vefslóð: bokasafn.kopavogur.is
Netfang: bokasafn(hjá)kopavogur.is
Vísindaskóli Náttúrufræðistofu Kópavogs (8 - 12 ára)Leynist lítill vísindamaður heima hjá þér?
Í sumar stendur Náttúrufræðistofa Kópavogs fyrir sumarnámskeiði, Vísindaskólanum, fyrir börn á aldrinum 8 til 12 ára. Vísindaskólinn verður vikurnar 30. júní - 4. júlí og 11. - 15. ágúst á tímanum frá kl. 09.00 - 13.00.
Í Vísindaskólanum fá forvitnir krakkar tækifæri til að læra um skordýr, fugla, fjöruna, veðrið og plöntur. Áhersla er lögð á útiveru til að kynnast náttúrunni í nærumhverfi Náttúrufræðistofu Kópavogs.
Umsjón með námskeiðinu hafa Hulda Margrét Birkisdóttir og Sævar Helgi Bragason hjá Náttúrufræðistofu Kópavogs. Einnig njóta þau liðsinnis annarra sérfræðinga.
Námskeiðsgjald er 11.500 kr. hvora viku og er hámarksfjöldi þátttakenda á hvert námskeið 18 börn.
Sjá nánar kynningu á Facebook og á heimasíðu MEKÓ fyrir júlí og ágúst.
Náttúrufræðistofa Kópavogs
Hamraborg 6a
Sími: 441 7200Vefslóð: natkop.kopavogur.is
Netfang: natkop(hja)kopavogur.isViðburðir á vegum menningarhúsanna
Það er alltaf nóg um að vera í menningarhúsum Kópavogsbæjar á sumrin. Sjá nánar um sumarviðburði í hlekk hér að neðan.
Alla miðvikudaga í sumar býður Bókasafn Kópavogs og Náttúrusafn upp á sumarsmiðjur frá kl. 14:00 til 17:30, þar sem dýr og náttúra eru í sviðsljósinu.
Sumarlesturinn er á sínum stað þar sem börn geta farið í ævintýraferð með Gúnda geit.
Sumarstarf fyrir fötluð börn og ungmenni
Sumarnámskeið í Frístund Álfhóli eru fyrir fötluð börn í 1. - 4. bekk, búsett í Kópavogi. Sumarnámskeiðin eru til húsa í Álfhólsskóla (Digranes) Álfhólsvegi 120.
Hvað kostar?
Námskeiðsgjald er kr. 13.000 hver vika og greiðist við skráningu. Systkinaafsláttur reiknast við skráningarferlið.
Gjald vegna gæslu er kr. 620 hver klst.
Tímabil
Námskeiðin eru:- Frá 15. júní - 17. júlí.
- Frá 4. ágúst - 14. ágúst
Lokað er frá 20. júlí - 31. júlí.
Hámarksfjöldi á hvert námskeið eru 20 börn.
Umsjón með Frístund Álfhóli hefur: Jóna Margrét Guðjónsdóttir
Sími: 659 7636Forsjáraðilar barna og unglinga með fötlun sem eiga lögheimili í Kópavogi og stunda nám við Klettaskóla geta sótt um sumarvist í frístundaklúbbunum Öskju, Guluhlíð og Heklu.
Opnunartími yfir sumarið er virka daga frá kl. 08:00–17:00.
Virk dagskrá er á milli kl. 09.00 – 16.00.
Hægt er að kaupa viðbótarstund frá kl. 08.00 – 09.00 og 16.00 – 17.00.
Sumarnámskeið í Hrafninum er fyrir fötluð börn í 5. - 10. bekk, búsett í Kópavogi. Sumarnámskeiðin eru í íþróttahúsinu Digranesi við Skálaheiði 2.
Markmið námskeiðanna er að veita börnum og unglingum fastan punkt í tilverunni og bjóða upp á fjölbreytta dagskrá. Viðfangsefni sumarnámskeiðanna eru m.a. sundferðir, útivist, heimsókn í fjölskyldu - og húsdýragarðinn og fleiri stuttar vettvangsferðir. Stuðlað er að því að öllum líði vel og finnist gott að koma í Frístund Álfhól og Hrafninn til að njóta frístundaverkefna í öruggu og skemmtilegu umhverfi.
Skipulögð dagskrá er frá 09:00 -16:00, einnig er boðið upp á gæslu milli 08:00 -09:00 sem þarf að skrá í sérstaklega.
Börnin þurfa að hafa með sér nesti fyrir allan daginn.
Hvað kostar?
Námskeiðsgjald er 13.000 kr. hver vika og greiðist við skráningu. Systkinaafsláttur reiknast í skráningarferlinu.
Gjald vegna gæslu kl. 08.00 – 09.00 er 620 kr. hver klukkustund.
Tímabil
Námskeiðin eru:
- Frá 15. júní – 17. júlí.
- Frá 4. ágúst – 14. ágúst.
Lokað er frá 20. júlí - 31. júlí
Hámarksfjöldi á hvert námskeið er 22 börn.
Forstöðumaður í Hrafninum er: Daði Helgason
Sími: 441 9381 / 897 0013Í Vinakoti er einstaklingsmiðuð þjónusta fyrir fjölþættan hóp barna og ungmenna.
Vinakot býður upp á heimilislegt búsetuúrræði þar sem markmiðið er að börnum og ungmennum líði vel, finnist þau örugg og upplifi sig velkomin.
Umsóknir fara í gegnum Vinakot og í samráði við ráðgjafa á Velferðarsviði.
Vinaskjól er fyrir ungmenni á aldrinum 16 til 20 ára og eru í framhaldsskóla.
Að loknum skóladegi geta ungmenni sótt frístundaþjónustu sem byggir á að styðja ungmennin til sjálfstæðis, efla vald- og sjálfsákvörðunarrétt þeirra, auka félagslega færni og almenna þátttöku. Í starfinu er lögð áhersla á að efla sjálfstraust og samkennd, ásamt því að skapa skemmtilegt frístundastarf sem ungmennin taka þátt í að skipuleggja.
Umsóknir/skráningar fara í gegnum Vinaskjól og í samráði við ráðgjafa ungmennanna á Velferðarsviði.
Gott að vita
- Mikilvægt er að börn mæti tímanlega þar sem oft er farið í ferðir yfir daginn.
- Foreldrar eru beðnir um að tilkynna forföll, til dæmis vegna veikinda.
- Mikilvægt er að upplýsingar um veikindi, fötlun eða aðrar stuðningsþarfir komi fram við skráningu svo hægt sé að mæta þörfum barnsins frá fyrsta degi.
Gerðar eru miklar kröfur um þjálfun og þekkingu starfsfólks á viðfangsefnum námskeiðanna og um að fyllsta öryggis sé gætt. Sérstök aðgát er höfð í sundferðum, siglingum og þegar ferðast er með börnin á milli staða.
Í öryggisskyni eru ekki fleiri en 20 börn á hvern leiðbeinanda nema á sértækum námskeiðum svo sem siglingum og á námsleiðum fyrir börn með sérþarfir, þar eru börnin færri á hvern leiðbeinanda.
Allt starfsfólk sumarnámskeiða ljúka námskeiði í skyndihjálp, fá leiðsögn í viðbrögðum á mismunandi hegðun barna og brýnustu öryggismálum í umhverfi námskeiðanna, varðandi sund, siglingar og ferðir með börnin.