
Börn og ungmenni
Kópavogsbær býður upp á fjölbreytta þjónustu fyrir börn, ungmenni og fjölskyldur þeirra.
Í Kópavogi er lögð áhersla á að skapa börnum og ungmennum gott umhverfi til að læra, þroskast og njóta sín - jafnt í skóla og utan hans.
Dagforeldrar
Daggæsla fyrir yngstu börnin í hlýju og öruggu umhverfi.
Leikskólar
Leikur, samskipti og skapandi starf leggur grunn að þroska barna.
Grunnskólar
Öll börn eiga rétt á að njóta sín og vera stolt af því hver þau eru.
Heimgreiðslur
Ef barnið þitt er orðið 15 mánaða og bíður eftir daggæslu gætir þú átt rétt á heimgreiðslum.
Stafræn skóladagatöl
Dagatöl fyrir leik- og grunnskóla, félagsmiðstöðvar og Skólahljómsveit Kópavogs.
Frístund og félagsmiðstöðvar
Vandað og skemmtilegt frístundastarf fyrir börn á grunnskólaaldri þar sem öll fá tækifæri til þátttöku.
Gæsluvöllur Kópavogs
Lækjarvöllur Dalsmára 23, sími 666 6142
8. júlí - 5. ágúst 2026
Opið 9.00-12.00 og 13.00-16.00
Gjald kr. 600 (greiðist rafrænt/með korti)
Starf gæsluvallarins byggist á útiveru þar sem börn fá tækifæri til að leika við önnur börn í öruggu umhverfi.

Barnvænt sveitarfélag
Barnvænt sveitarfélag er samfélag sem stýrt er af sveitar- eða bæjarstjórn með það að markmiði að bæta aðstæður barna og tryggja að ávallt sé tekið tillit til réttinda þeirra.

Farsæld barna
Samþætt þjónusta í þágu farsældar barna sem tryggir að börn og fjölskyldur falli ekki á milli kerfa.

Stuðningur í skóla
Stuðningur við börn byggir á virðingu, umburðarlyndi og metnaði. Mikilvægt er að skapa námsumhverfi sem styður við hæfileika og sérstöðu hvers barns.

Íþróttir og tómstundir
Í Kópavogi stendur börnum og ungmennum til boða fjölbreytt íþrótta- og tómstundastarf hjá íþróttafélögum og öðrum félagasamtökum. Kópavogsbær veitir frístundastyrk til að styðja við þátttöku í slíku starfi.

Ungmenni (16-25 ára)
Ýmis þjónusta og tækifæri standa ungmennum til boða að loknum grunnskóla. Áhersla er lögð á vellíðan og þátttöku í samfélaginu, í takt við þarfir þeirra og áhugasvið.

Menntaskólinn í Kópavogi
Menntaskólinn í Kópavogi (MK) er ríkisrekinn framhaldsskóli á Digranesinu.
Í skólanum er boðið upp á fjölbreytt nám á framhaldsskólastigi, bæði bóklegt og verklegt. Einnig eru í boði sérhæfðar námsleiðir, til dæmis matvælanám, leiðsögunám og afrekssvið.

Tónlistarskólar
Í Kópavogi starfa þrír tónlistarskólar sem bjóða upp á metnaðarfullt tónlistarnám fyrir börn og ungmenni.

Sumar í Kópavogi
Sumarið í Kópavogi er litríkt og fullt af tækifærum.
Víða er líf og fjör þar sem börn og ungmenni geta tekið þátt í starfi sem hentar þeim. Í boði er meðal annars sumarfrístund, ýmis leikja- og íþróttanámskeið og sumarstörf i Vinnuskólanum.