Beint í efni

Sum­ar­nám­skeið

Skráningar á sumarnámskeið á vegum Kópavogsbæjar hófust á sumardaginn fyrsta 23. apríl 2026.

Fristund.is er nýr þjónustuvefur sem birtir allt frístundastarf á höfuðborgarsvæðinu á einum stað.

Fyr­ir yngstu börn­in

Gæsluvellir eru fyrir börn á aldrinum 20 mánaða til 6 ára og eru starfræktir yfir sumarlokun leikskóla. Starfsemin fer eingöngu fram utandyra og þurfa börn því að vera klædd eftir veðri. Athugið að fjöldi barna getur verið takmarkaður.

Gjald er 500 kr. fyrir hvert skipti og er eingöngu tekið við kortagreiðslu.

Sum­ar­nám­skeið á veg­um Kópa­vogs­bæj­ar

Skráning á námskeið á vegum Kópavogsbæjar fer fram í gegnum Abler.

Upplýsingar um skráningar á önnur leikja- og íþróttanámskeið er að finna á heimasíðum viðkomandi aðila/félags eða á Fristund.is

Sum­ar­starf fyr­ir fötluð börn og ung­menni

Gott að vita

  • Mikilvægt er að börn mæti tímanlega þar sem oft er farið í ferðir yfir daginn.
  • Foreldrar eru beðnir um að tilkynna forföll, til dæmis vegna veikinda.
  • Mikilvægt er að upplýsingar um veikindi, fötlun eða aðrar stuðningsþarfir komi fram við skráningu svo hægt sé að mæta þörfum barnsins frá fyrsta degi.