Vinnuskólinn
Vinnuskólinn í Kópavogi býður íbúum á aldrinum 14–17 ára fjölbreytt og skemmtileg sumarstörf. Markmið skólans eru gleði, vinna og lærdómur, með áherslu á jákvæða innsýn í atvinnulífið
Þátttaka í Vinnuskólanum er kjörið tækifæri fyrir ungt fólk til að öðlast reynslu af launaðri vinnu í hvetjandi og jákvæðu umhverfi. Þar gefst þeim færi á að taka þátt í verkefnum sem bæta umhverfið, kynnast nýju fólki og læra um umhverfismál, samskipti og virðingu gagnvart vinnu.
Umsókn og skráning
Skráning í Vinnuskólann
Nemendur í Vinnuskólanum í Kópavogi skrá sig til vinnu með því að smella á græna hnappinn hér að ofan og skrá sig inn með rafrænum skilríkjum.
Mikilvægt er að allar upplýsingar sem beðið er um komi fram í umsókninni.
Allir unglingar sem búsettir eru í Kópavogi og verða 14-17 ára (2009- 2012) á árinu geta sótt um vinnu hjá Vinnuskólanum. Nemendur sem eru 16 til 17 (2009- 2010) ára sem sækja um hjá Vinnuskólanum geta óskað eftir því að fá vinnu hjá félögum og stofnunum í bænum og er þeim raðað inn á þá staði með hliðsjón af fyrri umsögnum í Vinnuskólanum.
Nemendur á undan í skóla
Þeir nemendur sem eru á undan jafnöldrum sínum í grunnskóla geta fengið að hefja nám ári á undan í Vinnuskólanum.
Skilyrði er að nemandinn sé orðinn 13 ára þegar störf hefjast, í samræmi við reglugerð um vinnu barna og unglinga. Kjósi nemandi og foreldri hans að nýta sér þennan möguleika fylgir nemandi samnemendum sínum gegnum starf Vinnuskólans í launum og vinnutímum. Jafnfram skerðist réttur þess nemanda til að starfa hjá Vinnuskólanum á 17. ári.
Foreldrar eru beðnir um að skrifa undir yfirlýsingu sem hægt er að nálgast hér.
Skráningar nemanda sem eru á undan í skóla þurfa að fara fram í gegnum síma Vinnuskólans 441-9080.
Nemendum er að jafnaði raðað í hópa eftir búsetu og aldri. Ekki er víst að vinir eða bekkjarfélagar séu í sama hópi. Stundum raðast nemendur á misjöfnum aldri saman í hópa saman.
Engar breytingar eru gerðar á hópum fyrstu dagana. Það er í höndum viðkomandi flokksstjóra að ákveða það í sínum hópi. Flestir eru með tvo hópa og verður að gæta þess að ekki sé ójafnvægi vegna fjölda í þeim.
Vinnuregla Vinnuskólans er að aldrei skuli vera fleiri en 15 nemendur undir umsjá eins flokkstjóra.
Við reynum eftir fremsta megni að verða við beiðnum að skipta um vinnutíma ef nemendur eiga erfitt með að vinna á ákveðnum tímum. Við áskiljum okkur rétt til að hafna slíkri beiðni ef flokkstjóri lítur svo á að skipting hópa sé ójöfn eða breytingar hafi áhrif á vinnuframlag nemenda.
Þegar nær dregur upphafi starfs fá forsjáraðilar upplýsingar um mætingu í tölvupósti. Þar kemur fram hvar og hvenær nemandi á að mæta og hver tekur á móti honum.
Foreldrar eru beðnir um að hafa samband við flokkstjóra í þeim tilvikum sem óskað er eftir færslu í vinnuhópum.
Hægt er að fylgjast með stöðu umsóknar á vef Vinnuskólans.
Starfið

Helstu verkefnin eru snyrting og fegrun bæjarins.
Vinna hjá stofnunum og félögum
Vinnuskólinn býður nemendum á 16. og 17. ári nám hjá félögum og stofnunum í sveitarfélaginu.
Flest íþróttafélög, leikskólar og aðrar stofnanir bjóða nemendum að koma til sín og læra handbrögð við vinnu hjá sér. Þeir nemendur sem vinna á þessum stöðum eru undanþegnir tímabilum Vinnuskólans og vinna í samráði við stjórnendur á vinnustað þá tíma er Vinnuskólinn heimilar.
Þegar sótt er um nám hjá Vinnuskólanum er hægt að velja um þá staði sem helst koma til greina að mati nemanda.
Athugið að engar undantekningar eru gerðar á aldurstakmörkum varðandi þessi störf.
Við val á nemendum til starfa er farið eftir umsögnum fyrri ára frá Vinnuskólanum.
- Jafningjafræðsla FÉLKÓP
- Aðstoð á skáknámskeiði
- Aðstoð við námskeið - Breiðablik
- Aðstoð við námskeið - Crossfit
- Aðstoð við námskeið - Gerpla
- Aðstoð við námskeið - GKG
- Aðstoð við námskeið - HK
- Aðstoð við námskeið - Hrafninn
- Aðstoð við námskeið - KFUM/KFUK
- Aðstoð við námskeið hjá KVAN
- Aðstoð við námskeið - Siglingaklúbbur
- Aðstoð við námskeið - Skátar
- Aðstoð við námskeið - Sundnámskeið
- Aðstoð við námskeið - TFK
- Aðstoðarmenn flokkstjóra í garðyrkju
- Gæsluvellir
- Götuleikhús
- Myndlistarskóli Kópavogs
- Hjúkrunarheimilið Roðasalir
- Hjúkrunarheimilið Sunnuhlíð
- Hrafnista - Boðaþingi
- Austurkór - heimili fyrir fatlaða
- Leikskólar
- Skólagarðar
- Smíðavellir
- Starf á bókasafni
- Starf í Höfuð-Borginni í samráði við menntasvið
- VR hópur Vinnuskólans
- Velkomin - fyrir börn með annað tungumál en íslensku - aðstoð
Vinnutími og tímabil
Starfstími Vinnuskólans er frá maí til ágúst ár hvert.
Sumrinu er skipt í þrjú tímabil og geta nemendur valið allt að tvö þeirra.
Þau sem sóttu um áður en formlegur umsóknarfrestur rann út fá vinnu á þeim tímabilum sem óskað var eftir.
Vinnutímabil eru ekki skilgreind fyrir þennan aldur. Vinnutími er ákveðinn í samráði við vinnustað og stjórnendur hans.
Frí er á hefðbundnum frídögum.
Tímabil 1 - 10. júní til 30. júní
Tímabil 2 - 6. júlí til 22. júlí
Tímabil 3 - 27. júlí til 13. ágústNemendur fæddir 2010 vinna frá 8:15 til 11:30 og aftur frá 12:30 til 15:30 mánudaga til fimmtudaga.
Nemendur fæddir 2012 vinna frá 8:15 til 11:30 eða frá 12:30 til 15:30 mánudaga til fimmtudaga.
Frí er á hefðbundnum frídögum.
Tímabil 1 - 10. júní til 1. júlí
Tímabil 2 - 7. júlí til 23. júlí
Tímabil 3 - 28. júlí til 13. ágústVinnutími er frá 8:15 til 11:30 og aftur frá 12:30 til 15:30 þriðjudaga til fimmtudaga., með undantekningum sem auglýstar verða síðar.
Frí er á hefðbundnum frídögum.
Hvar er hægt að fylgjast með vinnutíma?
Á vef Vinnuskólans er hægt að nálgast alla vinnutíma.
Vinnutíminn er uppfærður daglega og er lítið mál að koma með athugasemdir um skráningu um leið og þið takið eftir villu.
Endilega hafið samband við flokkstjóra eða yfirmann hjá stofnun/félagi ef skráning er ekki rétt.
Laun og greiðslur
Launatímabil Vinnuskólans eru ákveðin ár hvert í samráði við launadeild Kópavogsbæjar.
Launatímabil 2026
Launatímabil Vinnuskólans hefst 10. hvers mánaðar og lýkur þann 9. næsta mánaðar.
Laun eru greidd 22. hvers mánaðar eða síðasta virka dag á undan.
Þau sem eru á 16. ári eða eldri í Vinnuskólanum eru beðin um upplýsingar varðandi nýtingu persónuafsláttar við umsókn. Það er á ábyrgð þess sem sækir um að merkja við nýtingu persónuafsláttar.
Ef það hefur gleymst endilega hafið samband við okkur í Vinnuskólanum og við breytum því fyrir ykkur.
Ekki er hægt að biðja um leiðréttingu afturvirkt.
Byrjað er að greiða í lífeyrissjóð næstu mánaðamót eftir 16 ára afmælisdaginn.
Launin eru lögð inn á bankareikning unglinganna og þurfa því allar bankaupplýsingar að fylgja umsókn. Aðeins er hægt að nota bankareikning unglingsins.
Reglur, réttindi og fræðsla

Leyfi og veikindi
Leyfi og veikindi skal tilkynna til flokkstjóra. Einungis er tekið við tilkynningum frá foreldrum eða forsjáraðilum. Veikindi ber að tilkynna áður en vinna hefst dag hvern.
Nauðsynlegt er að tilkynna veikindi alla daga meðan þau standa yfir.
Ekki er tekið mark á tilkynningum sem berast í tölvupósti, textas- eða fésbókarskilaboðum.
Veikindi teljast sem tapaðar vinnustundir og ekki er hægt að vinna þær upp.
- Flokkstjóri er yfirmaður hvers vinnuhóps og eftir honum ber nemendum að fara. Næsti yfirmaður hans er yfirflokkstjóri.
- Reykingar og öll önnur tóbaksnotkun er stranglega bönnuð á vinnutíma.
- Símar skulu vera stilltir á hljóðlaust og ekki notaðir sem samskiptatæki á vinnutíma Vinnuskólans. Engin ábyrgð er tekin á slíkum tækjum á vinnutíma.
- Engin ábyrgð er tekin á persónulegum hlutum sem komið er með til vinnu.
- Öll verkfæri í eigu Vinnuskólans eru afhent nemendum með því formerkjum að þau eru á ábyrgð þeirra. Skemmdir á eigum skólans skulu greiddar af þeim sem þeim veldur.
- Allt starfsfólk Vinnuskólans í Kópavogi skulu stunda sína vinnu af stundvísi.
- Nemendum ber að fara eftir því sem flokkstjóri segir. Allt starfsfólk sem skrá sig til vinnu í Vinnuskóla Kópavogs hafa skráð sig þar vegna áhuga á að starfa innan Vinnuskólans.
- Dónaskapur starfsfólks eða nemanda gegn öðrum verður ekki liðin.
- Allir tilburðir til eineltis verða tilkynntir til skrifstofu Vinnuskólans um leið og þeir gerast. Við þá tilkynningu fer af stað verkferill vegna eineltismála.
- Verði misbrestur á hegðun nemanda skal verkferill vegna agamála virkjaður.
Réttindi og skyldur á vinnumarkaði
Í sumar verður ASÍ með kynningu fyrir alla nemendur 15 og 16 ára um réttindi og skyldur á vinnumarkaði. Er þetta hluti af því að nemendur verði fróðari um vinnumarkaðinn eftir störf sín hjá Vinnuskólanum.
Velkominn fræðsla
Nemendum með annað tungumál er boðið upp á námskeið á vegum Velkominn þar sem þeim er hjálpað að læra tungumálið og aðlagast íslenskri menningu. Námskeiðið er unnið í nánu samstarfi við frístundadeild Kópavogsbæjar.
Umhverfisfræðsla
Umhverfisfræðsla er stór þáttur í starfi Vinnuskólans. Vinnuskólinn er einn af þremur vinnuskólum landsins sem er þátttakandi í verkefninu Skóli á grænni grein, sem er merki um markvisst starf í þágu umhverfis. Á hverju sumri hefur Vinnuskólinn ráðið til starfa umhverfisfulltrúa sem sér um fræðslu unglinga í þessum málefnum. Sem hluti af umhverfisfræðslu Vinnuskólans fer hluti nemenda á skógræktarsvæði til að hjálpa til við landgræðslu með Garðyrkjufélagi Íslands.
Jafningjafræðslan
Í samstarfi við FÉLKÓP hefur Vinnuskólinn boðið jafningjafræðurum að koma í heimsókn í alla hópa í sumar. Þeir koma í heimsókn í hvern hóp tvisvar sinnum yfir sumarið. Umræðuefnið fer eftir því hvað brennur á nemendum hverju sinni.
RÍSÍ
Í fyrsta skiptið í ár mun RÍSÍ vera með fræðsluerindi fyrir nemendur um Tölvuleikjaspilun og jákvæð áhrif hennar. Nemendum verður boðið í Arena sem er keppnis- og æfingasvæði Rafíþróttadeildar Breiðabliks og sýnt hvað er í boði þar.
Sniglarnir og samgöngustofa
Bifhjólasamtökin Sniglarnir og samgöngustofa koma í heimsókn í alla vinnuhópa Vinnuskólans og fræða nemendur um notkun bensín og rafknúinna ökutækja og hættur sem þeim fylgja. Hefur þessi fræðsla verið fastur liður í starfi Vinnuskólans og mælst gríðarlega vel fyrir undanfarin árin.
Skógræktarfræðsla
Skógræktarfélag Kópavogs býður nemendum í 9. bekk upp á fræðslu varðandi skógrækt í nágrenni Kópavogsbæjar. Að fræðslu lokinni fara nemendur í skógræktarferð í nágrenni bæjarins og hjálpa til við ræktun.
Unnið er að fleiri skemmtilegum uppákomum og fræðslum fyrir sumarið.
Gott að vita
Á hverju ári koma unglingar með ýmiskonar ofnæmi í Vinnuskólann. Vinnuregla Vinnuskólans er að allir nemendur í tveimur yngstu árgöngunum starfa í útihópum okkar.
Þegar aðstæður koma upp er geta verið ofnæmisvaldandi er það verkefni flokkstjóra að finna verkefni sem hæfir þeim einstaklingum sem um ræðir.
Matarhlé er milli kl. 11:30-12:30.
Kaffitímar eru tveir:
- Fyrir hádegi kl. 10:00-10:15.
- Eftir hádegi kl. 14:00-14:15.
Almennt er unglingunum komið fyrir í hópum nálægt skólum, nema aðrar óskir komi fram á umsókn viðkomandi.
Allar upplýsingar koma fram á vef Vinnuskólans.
Skrifstofur og opnunartími
Skrifstofur Vinnuskólans eru í Askalind 5.
Sími: 441 9080
Tölvupóstur vinnuskoli(hjá)kopavogur.is.
Skrifstofurnar opna frá og með 10. maí og síðasti starfsdagur er 16. ágúst. Verkefnastjóri Vinnuskólans hefur aðsetur á Digranesvegi 1 þá mánuði sem skrifstofa Vinnuskólans er lokuð.
Opnunartími
- Mánudaga - fimmtudaga 8:00 - 16:00.
- Föstudaga 8:00 - 13:00
Fylgstu með
Hægt er að fylgjast með fréttum af starfinu á fésbókarsíðu Vinnuskólans