Aðgengi og viðhald sorptunna
Mikilvægt er að tryggja gott aðgengi að sorptunnum svo sorphirða geti farið fram.
Samræmt lyklakerfi
Í Kópavogi er notast við samræmt lyklakerfi fyrir læstar sorpgeymslur. Það er á ábyrgð húsfélags að sorpgeymsla sé aðgengileg sorphirðunni. Kópavogsbær tekur ekki við stökum lyklum frá húsfélögum. Talnalásar eru ekki samþykktir.
Samræmt kerfi er til sölu hjá Lásum neyðarþjónustu á Skemmuvegi 4.
Aðgengi að sorptunnum
Aðgengi að sorptunnum er á ábyrgð íbúa.
Samkvæmt kafla 6.12 í byggingarreglugerð skulu sorptunnur vera í sorpgerði eða sorpskýli. Aðgengi að þeim þarf að vera greiðfært svo hægt sé að tæma tunnurnar án vandkvæða.
Á veturna þurfa húseigendur að hreinsa snjó frá sorpgeymslum og leiðinni að þeim innan lóðar.
Sé aðgengi hindrað verða tunnurnar ekki tæmdar.
Séu sorpgeymslur eða gerði læst skal notast við lyklakerfi sveitarfélagsins.
Þar sem fara þarf um lokuð hlið eða hurðir getur sveitarfélagið farið fram á að hægt sé að halda þeim opnum meðan á losun stendur, til dæmis með krækjum eða öðrum búnaði.Það getur reynst sérlega erfitt að koma þungum tunnum upp tröppur. Þær geta einnig verið ástæða meiðsla starfsfólks sorphirðu. Skábrautir eru nauðsynlegar til að bæta aðgengi í tröppum.
Ef tröppur hindra aðgang að sorpílátum má kanna hvort önnur staðsetning sé möguleg.
Það er mikilvægt að gæta þess að ekkert sé í gangvegi fyrir starfsfólk sorphirðu. Hindranir geta orsakað að sorpílát séu ekki tæmd.
Dæmi um hindranir eru:- Reiðhjól
- Bílar
- Barnavagnar
- Læsingar á geymslustað ílátanna
- Snjór
Það er mikilvægt að góð lýsing sé til staðar fyrir sorphirðufólk, sem og íbúa hússins.
Góð lýsing inni í ruslakompum eða þar sem sorpílát eru geymd skiptir miklu máli.
Það er mikilvægt að moka snjó úr gangvegi á losunardögum. Einnig er mikilvægt að sanda eða salta í hálku til að forðast slys starfsfólks.
Á losunardögum er betra að hundum sé haldið frá. Ef hundur er á lóð þarf að gæta þess að hann sé ekki í vegi starfsfólks við sorphirðu.
Opnar hurðir meðan á losun stendur auðvelda og flýta fyrir sorphirðu. Hurðapumpur og krókar sem halda hurðum opnum á meðan losun fer fram gerir vinnuna skilvirkari.
Samkvæmt samþykkt um meðhöndlun úrgangs í Kópavogi eiga allar tunnur hvers húss að vera geymdar á sama stað.
Gott undirlag flýtir fyrir sorphirðu. Það er mun auðveldara að draga tunnur eftir malbiki eða hellum heldur en grasi eða möl.
Of lítil lofthæð í aðkomuleiðum gerir starfsfólki erfitt fyrir og eykur álag.
Ef lofthæð er lág þar sem sorpílát eru geymd má kanna hvort önnur staðsetning sé möguleg.Efnisval við klæðningu, dyrakarma, gólf og veggi þarf að vera slitsterkt og gert þannig að það skemmist ekki vegna umgengni um sorpílátin.
Læsingar á sorpgeymslum þurfa að samræmast lyklakerfi sorphirðunnar í Kópavogi.
Nánari upplýsingar fást hjá Þjónustumiðstöð Kópavogs.
Viðhald sorptunna
Sorpílát sem losuð eru í Kópavogi eru í eigu bæjarins. Kópavogur sér um að viðhalda og endurnýja skemmd sorpílát. Ef tjón á íláti er hægt að rekja til slæmrar umgengni kann íbúi að þurfa að greiða fyrir endurnýjun þess. Það er á ábyrgð íbúa að hreinsa ílátin.
Ábendingar um bilaðar sorptunnur skal senda á thjonustumidstod@kopavogur.is eða hafa samband í síma 441-9000.