Samgöngur í Kópavogi
Kópavogsbær styður fjölbreyttar, öruggar og aðgengilegar samgöngur.
Á kortasjá Kópavogs er hægt að nálgast upplýsingar um göngu- og hjólastíga, hámarkshraða og fleira.
Almenningssamgöngur
Strætó bs. hefur umsjón með almenningssamgöngum í Kópavogi.
Aðalskiptistöð Strætó í Kópavogi er við Hálsatorg í Hamraborg. Þaðan liggja leiðir um bæinn og til nágrannasveitarfélaga.
Breytingar á leiðarkerfi
Unnið er að breytingum á leiðakerfi Strætó sem miða að því að styðja við Borgarlínuna.
Nánari upplýsingar má finna á heimasíðum Strætó og Borgarlínunnar.
Göngu- og hjólastígar
Uppbygging og þróun
Með samgöngusáttmála höfuðborgarsvæðisins (2019–2033) er lögð áhersla á uppbyggingu samgönguinnviða, þar á meðal stofnleiða fyrir gangandi og hjólandi.
Gert er ráð fyrir aukinni fjárfestingu í stígakerfinu á næstu árum.
Stígakerfi Kópavogs:
Stofnleiðir eru helstu samgöngustígar. Þeir eru greiðfærir allt árið, vel þjónustaðir og hafa forgang fram yfir hliðarumferð.
Tengistígar tengja stofnleiðir saman og við íbúðasvæði. Þar undir falla einnig útivistar- og afþreyingarstígar.
Almennir stígar eru aðrir stígar sem falla ekki undir þessar skilgreiningar.
Vetrarþjónusta
Upplýsingar um þjónustu á göngu- og hjólastígum í Kópavogi yfir vetrartímann.
Sjá nánar