Beint í efni

Fé­lags­starf og heilsu­efl­ing

Boðið er upp á fjölbreytt félagsstarf og heilsueflingu fyrir eldra fólk með áherslu á hreyfingu, samveru og góða líðan.

Fé­lags­starf eldri borg­ara

Félagsstarf eldra fólks er mjög öflugt í Kópavogi og fer fram í þremur félagsmiðstöðum.

Félagsmiðstöðvarnar eru opnar fólki á öllum aldri óháð félagsaðild, en sú starfsemi sem er niðurgreidd er eingöngu ætluð eldra fólki, búsettu í Kópavogi.

Virkni og vel­líð­an 60+

Samstarfsverkefni Kópavogsbæjar, Breiðabliks, Gerplu og HK.

Verkefnið Virkni og vellíðan býður eldri bæjarbúum í Kópavogi upp á fjölbreytta og heilsueflandi hreyfingu hjá íþróttafélagi nærri heimili þeirra.

Markmiðið er að efla líkamlega, andlega og félagslega heilsu og stuðla að virkni og vellíðan á efri árum.

Roðasalir

Sérhæfð dagþjálfun fyrir eldra fólk með heilabilun.

Dagþjálfunin er ætluð öldruðum Kópavogsbúum með heilabilun.

Lögð er áhersla á fjölbreytta virkni, félagslegan stuðning og vellíðan í daglegu lífi. Markmiðið er að viðhalda færni og sjálfstæði eins lengi og kostur er og styðja þannig við að fólk geti búið sem lengst heima.

Pláss er fyrir 20 einstaklinga.

  • Sími dagdeildar: 441 9623
  • Deildarstjóri dagþjálfunar er Kristín Margrét Jakobsdóttir, sími 441 9622.
Félagsstarf og heilsuefling - Kópavogsbær