
Velferð íbúa
Stuðningur, ráðgjöf og úrræði þegar á þarf að halda.
Í Kópavogi er fjölbreytt þjónusta í boði fyrir íbúa sem þurfa aðstoð í daglegu lífi eða standa frammi fyrir breyttum aðstæðum. Tekið er mið af ólíkum þörfum og lögð áhersla á virðingu, jafnræði og að íbúar fái stuðning við hæfi.

Fjölskyldur og börn
Stuðningur og ráðgjöf stendur fjölskyldum til boða þegar aðstæður hafa áhrif á líðan eða daglegt líf. Það getur til dæmis verið vegna félagslegra aðstæðna, álags, veikinda, fötlunar eða uppeldistengdra áskorana. Markmiðið er að styðja fjölskyldur og skapa börnum örugg og þroskvænleg uppeldisskilyrði.
Ráðgjöf og stuðningur er veittur í gegnum barna- og fjölskylduteymi á velferðarsviði.
Sjá nánar
Fatlað fólk
Kópavogsbær veitir fjölbreytta þjónustu og stuðning fyrir fatlað fólk. Markmiðið er að efla sjálfstæði, þátttöku og vellíðan í daglegu lífi. Þjónustan er veitt í samræmi við réttindi fatlaðs fólks og er tekið mið af þörfum og aðstæðum hvers og eins.
Hægt er að bóka samtal við ráðgjafa í málefnum fatlaðs fólks ef þörf er á upplýsingum eða aðstoð.

Eldra fólk
Í Kópavogi er lögð áhersla á að eldra fólk geti búið heima sem lengst með viðeigandi stuðningi. Þjónustan sem er í boði byggir á virðingu, sjálfsákvörðunarrétti, öryggi og vellíðan.
Hægt er að bóka samtal við ráðgjafa eldra fólks ef þörf er á upplýsingum eða aðstoð.

Félagsleg ráðgjöf, fjárhagur og húsnæði
Félagsleg ráðgjöf og stuðningur vegna fjárhags eða húsnæðis er í boði þegar þörf er á. Markmiðið er að efla sjálfstæði íbúa, tryggja örugga búsetu og stuðla að virkri þátttöku í samfélaginu.
Íbúar geta leitað til félagsráðgjafa sem veitir leiðsögn og ráðgjöf.
Sjá nánar